Sport

Vösk sveit á afmælisárinu

í hópi þeirra bestu Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sarah Blake Bateman eru þær einu úr íslenska sundhópnum sem náðu OQT-lágmarki fyrir Ólympíuleikana en aðeins bestu sundmenn heims eru í þeim hópi.fréttablaðið/valli
í hópi þeirra bestu Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sarah Blake Bateman eru þær einu úr íslenska sundhópnum sem náðu OQT-lágmarki fyrir Ólympíuleikana en aðeins bestu sundmenn heims eru í þeim hópi.fréttablaðið/valli
27 íslenskir íþróttamenn keppa fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í Lundúnum sem hefjast eftir rúmar tvær vikur, jafnmargir og á leikunum í Peking árið 2008. Keppnislið Íslands verður formlega kynnt til sögunnar í dag.

Í dag verður tilkynnt hvaða íþróttamenn verða sendir til þátttöku á Ólympíuleikunum fyrir Íslands hönd. Þrettán einstaklingar hafa unnið sér inn þátttökurétt í sínum greinum, sem og handboltalandsliðið sem fjórtán leikmenn munu skipa.

Í dag fundar framkvæmdastjórn ÍSÍ og verður þá endanlegur hópur staðfestur. Ekki er von á öðru en að allir þeir íþróttamenn sem sérsamböndin hafa tilnefnt fái að keppa á leikunum í ár, enda ekki tilefni til annars. Íslenska sveitin er jafn stór og fyrir fjórum árum síðan þegar leikarnir fóru fram í Peking.

Sjö sundmenn taka þátt í leikunum fyrir hönd Íslands en í síðustu viku bættust þrír sundmenn í hópinn – allt karlar – þegar FINA, Alþjóðaólympíusambandið, bauð því sundfólki sem ekki hafði náð Ólympíulágmarki til að fylla upp í 900 manna kvótann sinn.

Ragnheiður Ragnarsdóttir var grátlega nálægt því að komast að í 100 m skriðsundi en FINA fullskipaði þátttakendalistann í greininni fyrir helgi og ekki útlit fyrir að það muni breytast í dag. Þó er ekki hægt að útiloka þann möguleika að Ragnheiður bætist við áður en lokað verður fyrir skráningar í dag.

Þegar er ljóst að blað verður brotið í íslenskri íþróttasögu á leikunum en í fyrsta sinn mun íslensk boðsundssveit taka þátt. Þær Eva Hannesdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir og Sarah Blake Bateman munu keppa í 4x100 m fjórsundi. Allar nema Eva keppa einnig í einstaklingsgreinum á leikunum.

Íslendingar munu keppa á nánast öllum dögum leikanna, sérstaklega ef vel gengur hjá handboltalandsliðinu og ef Ásdís Hjálmsdóttir kemst í úrslit í spjótkasti, sem hún á góðan möguleika á. Ef allt fer á besta veg verður laugardagurinn 11. ágúst, næstsíðasti dagur leikanna, eini frídagur íslensku sveitarinnar.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fagnar aldarafmæli á þessu ári og stóðu vonir til þess að við það tilefni væri hægt að senda metfjölda íslenskra keppenda á leikana. Það hafðist ekki en 32 íþróttamenn fór frá Íslandi á leikana í Seúl árið 1988. 22 karlar og sex konur skipa Ólympíusveit Íslands en árið 2000 fóru níu íslenskar konur á leikana sem haldnir voru í Sydney það árið.

Ólympíuleikarnir verða settir föstudaginn 27. júlí næstkomandi og þeim slitið svo sunnudaginn 12. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×