Vilja svör um bankasýsluna áður en þingið fer heim Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 13. desember 2014 19:57
Forstjóri Bankasýslu ríkisins segist hafa séð það fyrst í fjárlagafrumvarpinu að stofnunin fengi ekki krónu á næsta ári. Stofnunin sem var sett á laggirnar eftir hrun fer með fimmtán prósent af öllum eigum ríkissjóðs. Tilgangur Bankasýslunnar var meðal annars að færa eignaumsýsluna frá hinu pólitíska valdi enda ljóst að vegna hrunsins myndi ríkið fá í fangið stórar eignir frá bönkunum. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, segir í viðtali við Stöð 2 að það sé af og frá að verkefnum Bankasýslu ríkisins sé lokið. Það séu sambærilegar stofnanir í flestum Evrópulöndum, til að mynda Bretlandi, Hollandi og Grikklandi, þótt ríkið eigi hærra hlutfall í bönkunum á Íslandi. Eignir í umsýslu stofnunarinnar hafi skilað ríkissjóði þrjátíu milljörðum í arðgreiðslur á síðustu tveimur árum. Það þarf að leggja fram frumvarp um að leggja niður Bankasýsluna og auk þess þarf að breyta lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins. Það bólar hinsvegar ekkert á slíku frumvarpi enda hafa stjórnarflokkarnir ólíka sýn á málin og ekki allir framsóknarmenn sannfærðir um að hlutverki Bankasýslunnar sé lokið. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem situr í efnahags og viðskiptanefnd segir að lítil svör sé að fá frá stjórnvöldum um hvernig verði farið með eignarhald í bönkunum eftir breytinguna. Efnahags og viðskiptanefnd hafi þó farið fram á svör áður en fjárlög lokast og þingið fer heim. Steingrímur segir að ríkið hafi ekki selt þessa eignarhluti og bankasýslan hafi verið að stýra fjárhagslegri endurskipulagningu og sameiningu sparisjóðanna. Þá sé verið að undirbúa aðferðafræðina við mögulega sölu þeirra. Hann segist telja þetta afar misráðið, sérstaklega ef það eigi að færa þetta með gamla laginu í fjármálaráðuneytið og ráðherra eigi einn og sjálfur án nokkurra valnefnda fari að skipa í bankaráð og svo framvegis. Þá séu þessi armslengdarsjónarmið, um að það eigi að halda pólitísku valdi og meðferð eignarhlutarins aðgreindu, þá séu þau sokkin.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sjá meira