Henti skiptilykli í átt að konunni og keyrði á hana Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. desember 2014 19:13 Auk fangelsisdómsins var hann dæmdur til að greiða konunni 1,5 milljón í miskabætur sem og allan málskostnað. Vísir/Getty
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Ingólf Rúnar Sigurz í 3 ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárá en hann var ákærður fyrir að hafa ráðist á fyrrum sambýliskonu sína í september síðastliðnum. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa kastað skiptilykli inn um svefnherbergisglugga konunnar þar sem hún stóð inni í herberginu. Maðurinn neitaði sök en vitni voru að atvikinu sem staðfestu frásögn konunnar. Héraðsdómur taldi því sannað að maðurinn hefði kastað skiptilykli inn um gluggann í átt að konunni en í dómnum segir að atlagan hafi verið með „þeim hætti að alvarlegir líkamsáverkar hefðu getað hlotist af.“ Í kjölfarið á því að maðurinn kastaði skiptilyklinum inn um gluggann reyndi hann svo í tvígang að keyra yfir konuna. Konan var sannfærð um að hann væri að reyna að drepa sig en maðurinn neitaði sök og sagðist ekki hafa ekið á konuna af ásetningi. Héraðsdómur taldi ekki sannað að aksturslag hans hefði verið þannig að hann ætlaði að bana konunni. Hins vegar taldi dómurinn sannað að maðurinn hafi keyrt á konuna og var hann því sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Ingólfur Rúnar á að baki langan brotaferil en auk fangelsisdómsins var hann dæmdur til að greiða konunni 1,5 milljón í miskabætur sem og allan málskostnað. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sjá meira