Varað við Íslenskum þorski 29. október 2005 19:30 MYND/Vilhelm
Auðlinda- og umhverfisskrifstofunni tókst að hafa áhrif á að náttúruverndarsinnar vestra beittu sér ekki sérstaklega gegn íslenska þorskinum - en þeim finnst samt Íslendingar ganga of hart fram í veiðum sínum. Hið virta sædýrasafn í Monterey heldur úti sjávarafurðavakt þar sem staða tegunda er skoðuð og neytendum ráðlagt hvaða fisk er í lagi að borða og hvað eigi að forðast. Á listanum yfir það sem forðast skal er Atlantshafsþorskurinn. Jesse Marsh, sjávarlíffræðingur við Monterey bay sædýrasafnið, segir nokkrar ástæður fyrir því. Aðalástæðan sé að stofnstærð Atlantshafsþorsksins hefur snarminnkað. Hún sé þannig um 4% af þeirri stærð sem var árið 1854. Hún segir þetta mikla minnkun. Á síðasta ári var íslenski þorskurinn hins vegar sérstaklega nefndur og fólki sagt að finna sér eitthvað annað að snæða, en því var breytt eftir að athugasemdir bárust frá Gunnari Pálssyni hjá Auðlinda- og umhverfisskrifstofu. Engu að síður telja náttúruverndarsamtökin Íslendinga enn ganga og harkalega að stofninum með ofveiði og skemmdum á heimkynnum með notkun botnvarpa. Kalifornía er sjötta stærsta hagkerfi heims, og íbúar þar eru líkt og aðrir Vesturlandabúar farnir að huga meira að uppruna matvæla. Ný úttekt sýnir að stór hluti neytenda segist í það minnsta fara eftir ráðleggingum náttúruverndarsamtaka þegar kemur að vali á fiski. Jeff Kake, yfirkokkur á Pebble Beach resorts sem skrifað hefur matreiðslubók þar sem tekið er tillit til ráðlegginga Monterey-manna, segir fólk hafa mun meiri þekkingu á því hvað það borðar. Þannig hafi tæknin haft það í för með sér að fólk geti auðveldlega náð sér í upplýsingar um hvað það er að leggja sér til munns. Einu sinní hafi það verið bensínið á bílinn sem fólk hafi skoðað vel og þekkt, nú sé það eldsneytið á mannslíkamann sem fólk hugsar um. Jeff segir að þó þessar ráðleggingar hafi verið gefnar út telji hann að hugtakið Íslenskt hafi á sér aðra mynd en Atlanshafsfiskur. Hann telur því áhrifin ekki koma til með að verða mikil á útflutning Íslendinga vestur um haf.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira