Erlent

Bush boðar breyttar áherslur

George Bush Bandaríkjaforseti ræðir nú um að her sinn breyti um áherslur eða starfsaðferðir í Írak og viðurkennir að mánuðurinn hafi verið þeim erfiður. Sjötíu og sex bandarískir hermenn hafa verið felldir í Írak það sem af er þessum mánuði. Herinn hefur ekki misst fleiri menn í nokkrum mánuði frá því innrásin var gerð í Írak árið 2003, en um 2700 bandarískir menn hafa látið lífið í Írak. Það líður að kosningum í Bandaríkjunum og kallað er eftir breytingum.

Forsetinn er þó ekki á þeim buxunum að kalla hermenn sína heim. Hann segir þá verða áfram í landinu til að styðja íraska ríkisstjórn. Takmarkið sé óbreytt, eða fullur sigur, þrátt fyrir að áherslurnar gætu tekið breytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×