Uppgjör ársins 2006 11. janúar 2007 16:30 Ólafur Páll Gunnarsson er maðurinn á bak við Rokkland 2006. fréttablaðið/gva
Sjötta platan í Rokklands-seríunni, Rokkland 2006, kemur út á mánudag. Þetta er fyrsta útgáfa Senu á árinu 2007. Rokklands-plöturnar eru hugsaðar sem nokkurs konar framlenging útvarpsþáttarins Rokkland sem hefur verið á dagskrá Rásar 2 óslitið síðan 1995. Hingað til hafa plöturnar komið út fyrir jólin en nú var ákveðið að breyta af vananum. „Við ákváðum að hafa þetta sem fyrstu útgáfu ársins. Það er lógískt að gera þetta svona. Nú er árið búið og þetta er uppgjör eftir það,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, umsjónarmaður Rokklands, sem sér um lagaval og samsetningu platnanna. Andrea Jónsdóttir aðstoðaði hann við textaskrif í veglegum bæklingi sem fylgir með auk þess sem þeir Arnar Eggert Thoroddsen og Ágúst Bogason komu þeim lítillega til aðstoðar. Á fyrri plötunni eru nokkur af bestu lögum síðasta árs að mati Óla Palla, þar á meðal Crystal Ball með Keane, Young Folks með Peter, Bjorn & John og White Tiger með Pétri Ben. Á þeirri síðari eru nokkur af bestu lögum tíunda áratugarins, þar á meðal Teardrop með Massive Attack, Black Hole Sun með Soundgarden og Ný batterí með Sigur Rós. Upphaldslag Ólafs á plötunum er Exodus með færeysku rokksveitinni 200. „Það er frábært lag sem enginn ætti að láta framhjá sér fara, algjör hittari. Það er eins og blanda af AC/DC og Purrki Pillnikk,“ segir hann.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira