Menning

Bein útsending: Lögin úr leikhúsinu

Tinni Sveinsson skrifar
Tónlistin ræður ríkjum í streymi Borgarleikhússins í dag.
Tónlistin ræður ríkjum í streymi Borgarleikhússins í dag. Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanninu.

Í dag klukkan tólf munu leikarar Borgarleikhússins rifja upp lög sem eiga uppruna sinn í íslenskum leikverkum. Gleðistund fyrir alla tónlistar og leikhúsunnendur.

Hægt er að horfa hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir, sem er á kerfum Vodafone og Símans og í Stöð 2 appinu.

Klippa: Lögin úr leikhúsinu

Framundan í Borgó í beinni

Á fimmtudag klukkan 20 er komið að leiklestri á Tvískinnungi. Á undan verður spjall við Jón Magnús og Ólaf Egil. Á laugardag klukkan 12 les Arnar Dan ævintýrið Þar sem óhemjurnar eru.

Fleira skemmtilegt efni frá Borgarleikhúsinu má sjá á Instagram og Facebook-síðum leikhússins en þær síður eru uppfærðar nær daglega með efni tengdu starfsemi og sýningum. Einnig er hægt að finna atburði leikhússins úr samkomubanninu á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

Bubbi í beinni á Vísi í kvöld

Bubbi Morthens hefur staðið fyrir tónleikum í beinni á Vísi í hádeginu á föstudögum undanfarnar vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×