Fimm árum of sein með skýrslu um pyndingar Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 9. ágúst 2017 06:00 Vísir/GETTY
Íslensk stjórnvöld hafa ekki skilað skýrslu til nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum, eins og þeim ber að gera samkvæmt Alþjóðasamningi gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri mannréttindaskrifstofu ÍslandsVísir/GVASkýrslunni átti að skila fyrir 20. júlí 2012, í ráðherratíð Ögmundar Jónassonar sem þá gegndi embætti innanríkisráðherra. Þetta staðfestir Patricia Gillibert, ritari nefndarinnar í Genf. Aðildarríkjum, þar á meðal Íslandi, ber að senda nefnd um eftirlit með framkvæmd samningsins skýrslu reglulega. „Við höfum alltaf verið að bíða með okkar skýrslu af því við erum alltaf að bíða eftir skýrslu ríkisins,“ segir Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstýra Mannréttindaskrifstofu Íslands. Mannréttindaskrifstofan fylgist með samskiptum stjórnvalda við eftirlitsnefndir Sameinuðu þjóðanna og sendir nefndunum gjarnan svokallaðar skuggaskýrslur með viðbótarupplýsingum sem ekki hafa ratað í skýrslu ríkisins. Meðal þess sem nefndin leitar sérstaklega svara við á Íslandi, eru upplýsingar um um rannsókn íslenskra stjórnvalda á meintu fangaflugi bandarísku alríkisþjónustunar CIA á íslensku yfirráðasvæði, ítarlegar upplýsingar um tíðni og lengd einangrunarvistar í fangelsum, á lögreglustöðum og á sjúkrahúsum, fjölda þeirra sem fá ekki að afplána dóma sína vegna plássleysis í fangelsum, ráðstafanir til að tryggja Umboðsmanni Alþingis fjárráð til að sinna eftirliti með stofnunum sem vista frelsissvipt fólk og rannsókn á staðhæfingum og kvörtunum um óviðeigandi meðferð lögreglumanna og annarra löggæsluaðila á fólki í varðhaldi, á flugvöllum og í mótmælaaðgerðum almennings. Hvorki náðist í dómsmálaráðherra, sérfræðinga dómsmálaráðuneytisins né upplýsingafulltrúa þess við vinnslu fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira