Stórskotahríð Villa dugði ekki til

Anton Ingi Leifsson skrifar
Grealish kemst ekki lönd né strönd gengn Dwight McNeil í kvöld.
Grealish kemst ekki lönd né strönd gengn Dwight McNeil í kvöld. Gareth Copley/Getty

Aston Villa og Burnley gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fyrri leik dagsins í enska boltanum.

Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla sem eru enn að plaga hann.

Vörn beggja liða hélt vel en heimamenn í Villa voru nær sigrinum. Jack Grealish komst meðal annars nálægt því að skora á 89. mínútu en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 0-0.

Eftir jafnteflið er Villa í ellefta sætinu með nítján stig en Burnley er í sautjánda sætinu með tíu, stigi fyrir ofan fallsæti.

Síðari leikur kvöldsins er á milli United liðanna, Manchester og Sheffield.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira