Hollenskur landsliðsmaður handtekinn fyrir að stinga fjölskyldumeðlim Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. desember 2020 12:15 Promes í leik gegn Liverpool nýverið. Rico BrouwerGetty Images Hollenski landsliðsmaðurinn Quincy Promes hefur verið handtekinn fyrir að stinga fjölskyldumeðlim með hníf.
Hollenski miðillinn De Telegraf greinir frá en þar segir að hollenska lögreglan hafi staðfest handtöku á 28 ára karlmanni frá Amsterdam. Um er að ræða Quincy Promes, landsliðsmann Hollands og leikmann Ajax í hollensku úrvalsdeildinni. Málið snýr að ættarmóti sem haldið var í Abcoude, úthverfi Amsterdam-borgar í haust. Þar mun Promes hafa lent í áflogum við skyldmenni sitt sem endaði með því að fjölskyldumeðlimurinn var stunginn með hníf og hlaut alvarleg meiðsli. Þá ku sá hinn sami einnig hafa meiðst á hné í áflogunum. Talið er að ættmenni Promes hafi séð til þess að ekki fór verr. Ekki er víst af hverju lögreglan handtók Promes núna en málið hefur verið á borði hennar undanfarinn mánuð. Promes verður haldið í þrjá daga en hægt er að framlengja gæsluvarhaldið. Promes hefur leikið 46 leiki fyrir landslið Hollands og leikið með Twente, Spartak Moskvu, Sevilla og Ajax á ferli sínum.
Fótbolti Hollenski boltinn Holland Mest lesið Bönnuðu henni að eiga kærasta Sport KA-menn kölluðu eftir hjálp sálfræðings Íslenski boltinn Nýkominn til baka eftir sjö mánaða bann en er samt í EM-æfingahóp Fótbolti „Þeir bara börðu okkur út úr þessu“ Körfubolti Uppgjör og viðtöl: Valur - Grindavík 80-62 | Sannfærandi sigur Valsmanna Körfubolti „Ég bara spila minn leik og tek því sem vörnin gefur mér“ Körfubolti Littler vann úrvalsdeildina í pílu í kvöld Sport Jökull nýr framkæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands Rafíþróttir Utan vallar: Landsliðsþjálfarinn sem nennir ekki að koma til Íslands Fótbolti Ísak og félagar með annan fótinn í deild þeirra bestu Fótbolti Fleiri fréttir KA-menn kölluðu eftir hjálp sálfræðings Nýkominn til baka eftir sjö mánaða bann en er samt í EM-æfingahóp Ísak og félagar með annan fótinn í deild þeirra bestu Fjölnismenn á toppinn í Lengjunni Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Bleik spjöld tekin í notkun á Copa América Senda atkvæði sín með pósti frá EM í Þýskalandi Áhorfendur slógust úti á velli og stól kastað í sjónvarpsmenn Paquetá ákærður fyrir að sækjast eftir spjaldi í eigin leikjum Motta tekur við Juventus Vitnaði í Wenger og segir reynslumikið lið mæta til leiks á EM Hetja Atalanta í fámennan hóp og fagnaði svo innilega með mömmu sinni Lopetegui tekur við West Ham Utan vallar: Landsliðsþjálfarinn sem nennir ekki að koma til Íslands De Bruyne orðaður við nýtt félag í MLS Þjálfarakapall knattspyrnusumarsins 2024: Hver tekur við Brighton, Bayern, Chelsea eða þá Man United? Þrennan sem eyðilagði fullkomið tímabil Leverkusen Yfirmenn Pep fullvissir um að félagið verði ekki sakfellt Lookman gekk frá Leverkusen og Atalanta er Evrópudeildarmeistari Talið að Man Utd láti Ten Hag fara eftir úrslitaleikinn Féll í vor en vonast eftir Chelsea eða Bayern Andri Lucas á leið til Belgíu Tveimur leikjum frá ódauðleika Ummælin höfðu neikvæð áhrif á Nunez sem hugsar hlýlega til Spánar Bandaríkjamenn búnir að taka yfir Inter Milan Liverpool auglýsir lausa stöðu í þjálfarateymi Arne Slot „Þeir þurfa að vera heilir til að fá að spila“ Börn Bruno Fernandes kvöddu Jóhann: „Hann er toppmaður“ „Við drekkum blóð á hverjum morgni“ „Reglurnar hjá KSÍ eru skýrar“ Sjá meira
Þjálfarakapall knattspyrnusumarsins 2024: Hver tekur við Brighton, Bayern, Chelsea eða þá Man United?