Sjálfsmark Aubameyang tryggði Burnley sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Vesen.
Vesen. vísir/Getty

Það gengur hvorki né rekur hjá Arsenal þessa dagana og ekki vænkaðist hagur þeirra með tapi gegn Burnley á heimavelli í kvöld.

Bæði lið hafa verið í töluverðum vandræðum að undanförnu og leikurinn í kvöld bar þess merki.

Það dró til tíðinda eftir tæplega klukkutíma leik þegar Granit Xhaka gerðist sekur um algjöran dómgreindabrest þegar hann tók Ashley Westwood, miðjumann Burnley, léttu hálstaki. Eftir að atvikið hafði verið skoðað í VAR fékk Xhaka að líta rautt spjald.

Á 74.mínútu varð hinn ískaldi Pierre Emerick Aubameyang fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir hornspyrnu Burnley. Reyndist það eina mark leiksins. Lokatölur 0-1 fyrir Burnley.

Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í byrjunarliði Burnley en Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann á varamannabekk Arsenal.

Á sama tíma fékk Leicester heimsókn frá Brighton og er skemmst frá því að segja að heimamenn unnu öruggan 3-0 sigur þar sem Jamie Vardy og James Maddison fóru mikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira