Gylfi tryggði Everton sigur á Chelsea

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Gylfi nýbúinn að leggja boltann í netið.
Gylfi nýbúinn að leggja boltann í netið. vísir/Getty

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Everton sáu til þess að Chelsea tókst ekki að tylla sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar.

Everton fékk Chelsea í heimsókn á Goodison Park í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Edouard Mendy hefur byrjað ferilinn sinn sem markvörður Chelsea frábærlega en honum urðu á slæm mistök eftir 20 mínútna leik þegar hann braut klaufalega á Dominic Calvert-Lewin innan vítateigs.

Á vítapunktinn steig Gylfi Þór og skoraði hann af miklu öryggi framhjá Mendy.

Chelsea tókst ekki að jafna leikinn en Mason Mount var ansi nálægt því í tvígang. Fyrst skaut hann í þverslánna og síðar í stöngina beint úr aukaspyrnu.

Gylfi Þór bar fyrirliðaband Everton og lék 83 mínútur í leiknum sem lauk með 1-0 sigri Everton og eru þeir því komnir í sjöunda sæti deildarinnar

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira