Menning

Fyrsti bóksölulisti ársins 2020: Algjör sprenging í bóksölu

Jakob Bjarnar skrifar
Kóngurinn Arnaldur er fastur fyrir. Sá sem helst gerir sig líklegan til að velgja honum undir uggum er Bjarni Fritzson. Þriðja bók hans um Orra óstöðvandi hefur skotist upp lista á ógnarhraða.
Kóngurinn Arnaldur er fastur fyrir. Sá sem helst gerir sig líklegan til að velgja honum undir uggum er Bjarni Fritzson. Þriðja bók hans um Orra óstöðvandi hefur skotist upp lista á ógnarhraða.

Glæpasagnahöfundurinn snjalli Arnaldur Indriðason trónir sem fyrr efstur á bóksölulistum Fibut. Vísir birtir nú fyrstu bóksölulista ársins en til stendur að birta slíka lista með reglubundnum hætti fram að jólum. Þetta er sá listi sem allt snýst um, þetta er hitamælirinn sjálfur sem höfundar og þá ekki síður útgefendur rýna sig rauðeyga í.

Listinn er unninn út frá sölutölum frá eftirfarandi útsölustöðum bóka; A4, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaup, Samkaup verslana, Heimkaup, Forlagsverslunarinnar og Kaupfélags Skagfirðinga – það er í raun frá öllum helstu útsölustöðum bóka á landinu nema frá Eymundsson, sem af ókunnum ástæðum hefur neitað þátttöku frá árinu 2013.

Ótrúleg aukning í bóksölunni

Sem fyrr er sérfræðingur Vísis Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda (Fibut).

„Algjör sprengja er í bóksölu það sem af er nóvembermánuði, 57 prósenta aukning í fjölda seldra titla, út frá sölutölum þeirra smásala sem taka þátt í gerð listans, miðað við sama tíma í fyrra,“ segir Bryndís. En þá mældi fyrsti Bóksölulisti í nóvember söluna til og með 24. nóvember í stað 22. nóvember í ár, auk þess sem Bókabúð Máls og menningar var starfandi í fyrra en er lokuð núna. Þetta er í samræmi við það sem Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins sagði í samtali við Vísi fyrir um viku um mikla aukningu í bóksölu.

„Þetta er alveg með ólíkindum!“ segir Bryndís sem þekkir bóksölu á Íslandi betur en flestir, ef ekki allir. Þetta er vitaskuld gleðiefni fyrir þjóð sem hingað til hefur viljað tala um sig og skilgreina sem bókaþjóð.

„Ég stóðst ekki freistinguna og kíkti líka á sölutölur glæpasagnarisanna okkar þriggja, Arnaldar, Yrsu og Ragnars. Samanlögð söluaukning þeirra bóka í eintakafjölda, frá fyrsta söludegi er 79 prósent. Þar hefur nýjasta bók Ragnars Jónassonar, Vetrarmein, aukið sölu sína mest miðað við bók sama höfundar fyrir ári síðan. Glæpasagnaáhugi landsmanna er í miklum vexti.“

Bryndís Loftsdóttir leiðir lesendur Vísis í gegnum refilstigu bóksölunnar.

Svo virðist sem tryggð íslenskra bókakaupenda við sína glæpasagnahöfunda sé óbilandi. Glæpasagan hefur ráðið lögum og lofum á íslenskum bókamarkaði nú í um tveggja áratuga skeið. En almennt varðandi bóksöluna segir Bryndís ekki gera sér almennilega grein fyrir því hvað veldur:

„Hvort jólaverslunin sé farin svona miklu fyrr af stað en áður eða hvort þessar lygnu og stjörnubjörtu nætur nóvember mánaðar, hafi veitt okkur einhvern sérstakan lestrarmátt? Og svo kann auðvitað að vera að breytt heimsmynd í kjölfar farsóttar og aukin heimavera, snúi fólki í ríkari mæli að lestri bóka. Það gerðist kjölfar fjármálakreppunnar 2008 en sú aukning hvarf um leið og gjaldeyrir fór að streyma inn í landið á ný. Þannig gæti bóluefnið líka dregið úr lestri,“ segir Bryndís sem lítur til allra þátta og veðrabrigða þegar bóksalan á í hlut.

Bjarni „óstöðvandi“ Fritzson mættur með látum

En sé litið nánar á þennan fyrsta lista ársins þá hefur vinsælasti höfundur landsins, Arnaldur Indriðason, hefur komið sér fyrir á toppi Bóksölulistans, líkt og oft áður, á þessum árstíma.

„Þessi mikla tryggð lesenda við Arnald er verðskulduð. Hann kann ekki að klikka, er löngu orðinn órjúfanlegur hluti aðventu og jóla, líkt og hangikjöt og kertaljós,“ segir Bryndís. 

Hin heilaga þrenning, glæpasagnaþríeykið þau Ragnar, Yrsa og Arnaldur, gefur ekki þumlung eftir. Og það sem meira er, þau sækja í sig veðrið, heldur betur. Samanlögð söluaukning þeirra bóka í eintakafjölda, frá fyrsta söludegi er 79 prósent sé miðað við í fyrra.

Undanfarin árin hefur það verið svo að barnabækurnar hafa veitt glæpasagnagerðinni keppni á toppnum og svo er nú. En það er spútnikkinn frá því í fyrra sem gerir sig líklegan til að velgja Arnaldi og hinu heilaga glæpasagnaþríeyki, honum Ragnari og Yrsu undir uggum.

„Þriðja bókin um Orra óstöðvandi, eftir Bjarna Fritzson þeytist beint upp í annað sæti listans og fer fram úr ekki minni nöfnum en Ólafi Jóhanni Ólafssyni og Yrsu Sigurðardóttur. Það er gaman að sjá íslenskar barnabækur berjast um efstu sæti Bóksölulistans sem endurspeglar auðvitað þá miklu breidd sem finna má í íslenskri bókaútgáfu í ár.“

Glæsilegar ungar konur mæta sterkar til leiks

Mánuður er til jóla og enn eru bækur að berast til landsins, að sögn Bryndísar. Listinn á örugglega eftir að taka nokkrum breytingum á næstu vikum og það verður spennandi að fylgjast með þróuninni. 

Nýja bók Ólafs Jóhanns hefur hlotið afar góða dóma sem svo rímar við gott gengi á sölulistum. Ólafur Jóhann er til alls líklegur nú sem svo oft áður.Getty/Jemal Countess

Útgáfa íslenskra skáldverka hefur sjaldan verið jafn öflug. 

En er eitthvað sem gæti sett strik í reikninginn, komið óvænt með látum í keppnina?

„Já, „Svarta foladeildin“ virðist þetta árið samanstanda að stórum hluta af einstaklega glæsilegum ungum konum. Sólrún Diego hefur áður brugðið sér í líki folans með bókinni Heima, en í ár sendir hún frá sér bókina Skipulag þar sem hún heldur áfram að gefa góð ráð fyrir heimili landsmanna. Sólborg Guðbrandsdóttir hins vegar alveg ný í bransanum, með titil sem seint gleymist. Í bókinni Fávitar svarar hún spurningum unglinga um meðal annars kynlíf, ofbeldi, samskipti, líkamann og fjölbreytileika,“ segir Bryndís:

 Þær Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld hafa svo sett saman prjónabók sem virðist vera að slá rækilega í gegn. Þessar tvær síðast töldu eru báðar á meðal 10 mest seldu bóka listans að þessu sinni.

Hin vinsæla söngkona Salka Sól hefur í félagi við Sjöfn Kristjánsdóttur sett saman prjónabók og hún er að slá rækilega í gegn.

Og til að krydda þennan hóp, telur Bryndís vert að nefna Gísla Rúnar Björgvinsson heitinn og bókina hans, Gervilimrur.

„Ég held að margir eigi eftir að kaupa þá bók, bæði vegna væntumþykju og þakklætis til Gísla heitins og ekki síður vegna hönnunar bókarinnar sem skipar henni á alveg sérstakan stall. Svo eiga limrubækur líka tryggan kaupendahóp sem hefur ekki verið ofalinn á liðnum árum. Það er rúmt pláss fyrir góða limruhöfunda á íslenskum bókamarkaði.“


Topplistinn 1.-22. nóvember 2020

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  3. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  5. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  6. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  7. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson og Úlfur Logason
  8. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  9. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  10. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  11. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  12. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  13. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  14. Silfurvængir - Camilla Läckberg
  15. Jólaföndur : engin skæri, bara gaman – Unga ástin mín
  16. Kóngsríkið - Jo Nesbø
  17. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson og Úlfur Logason
  18. Ísskrímslið - David Walliams
  19. Bakað með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgsdóttir
  20. Verstu kennarar í heimi - David Walliams

Íslensk skáldverk

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  6. Dauðabókin - Stefán Máni
  7. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  8. 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
  9. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  10. Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir
  11. Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir
  12. Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  13. Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
  14. Ein - Ásdís Halla Bragadóttir
  15. Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir
  16. Sykur - Katrín Júlíusdóttir
  17. Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir
  18. Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir
  19. Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir
  20. Bróðir - Halldór Armand

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  2. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson og Úlfur Logason
  3. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  4. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  5. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  6. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  7. Jólaföndur : engin skæri, bara gaman – Unga ástin mín
  8. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson og Úlfur Logason
  9. Ísskrímslið - David Walliams
  10. Verstu kennarar í heimi - David Walliams
  11. Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið
  12. Hetja - Björk Jakobsdóttir
  13. 13 þrautir jólasveinanna : Í gamla daga - Huginn Þór Grétarsson
  14. Vertu þú! - Ingileif Friðriksdóttir
  15. Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  16. Ding! dong! Komum að leika! - Peppa Pig / Gurra Grís
  17. Barnaræninginn - Gunnar Helgason
  18. Jól í Múmíndal - Tove Jansson
  19. Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney
  20. Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný

Fræði og almennt efni

  1. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  2. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  3. Bakað með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgsdóttir
  4. Skipulag - Sólrún Diego
  5. Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson
  6. Samskipti - Pálmar Ragnarsson
  7. Dýralíf - John Maxwell Coetzee
  8. Fimmaurabrandararnir 2 -
  9. Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson
  10. Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson
  11. Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson
  12. Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson
  13. Prjónað af ást - Lene Holme Sansøe
  14. Saumaklúbburinn - Berglind Hreiðarsdóttir
  15. Draumaland : Frá fæðingu til sex ára aldurs - Arna Skúladóttir
  16. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  17. Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker
  18. Spegill fyrir skuggabaldur : Atvinnubann og misbeiting valds - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
  19. Morgunblaðið : Krossgátur 5
  20. Tíminn minn 2021 - Björg Þórhallsdóttir

Þýdd skáldverk

  1. Silfurvængir - Camilla Läckberg
  2. Kóngsríkið - Jo Nesbø
  3. Brúðkaup í desember - Sarah Morgan
  4. Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan
  5. Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante
  6. Þeir sem græta góðu stúlkurnar - Mary Higgins Clark
  7. Silkiormurinn - Robert Galbraith
  8. Strákurinn í röndóttu náttfötunum - John Boyne
  9. Menntuð - Tara Westover
  10. Sögur frá Sovétríkjunum - Ýmsir

Ljóð og limrur

  1. Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson
  2. 140 vísnagátur - Páll Jónasson
  3. Látra-Björg - Helgi Jónsson
  4. Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir
  5. Þagnarbindindi - Halla Þórlaug Óskarsdóttir
  6. 90 sýni úr minni mínu - innbundin - Halldóra Thoroddsen
  7. Árhringur - Björg Björnsdóttir
  8. 1900 og eitthvað - Ragnheiður Lárusdóttir
  9. Draumstol - Gyrðir Elíasson
  10. Handbók um ómerktar undankomuleiðir - Anton Helgi Jónsson

Ævisögur

  1. Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm
  2. Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
  3. Dóttir - leið mín til tveggja heimsmeistaratitla - Katrín Tanja Davíðsdóttir og Rory McKiernan
  4. Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir
  5. Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir
  6. Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram
  7. Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason
  8. Glæpur við fæðingu - Trevor Noah
  9. Sigríður á Tjörn - Sigríður Hafstað
  10. Siddi gull : Æviminningar Sigmars Ó. Maríussonar gullsmiðs - Guðjón Ingi Eiríksson

Uppsafnað frá áramótum

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  3. Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker
  4. Vegahandbókin - Ýmsir
  5. Fórnarlamb 2117 - Jussi Adler Olsen
  6. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  7. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  8. Ketóflex 3-3-1 mataræðið - Þorbjörg Hafsteinsdóttir
  9. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  10. Í vondum félagsskap - Viveca Sten





Fleiri fréttir

Sjá meira


×