Guardiola grátt leikinn af lærisveinum Mourinho Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. nóvember 2020 19:24 Mourinho hafði betur gegn Guardiola í þetta skiptið. vísir/Getty Það var boðið upp á stórleik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar Tottenham fékk Manchester City í heimsókn í Lundúnum. Liðunum stýrt af tveimur af sigursælustu knattspyrnustjórum seinni ára, þeim Jose Mourinho og Pep Guardiola sem hafa marga hildina háð á undanförnum árum. Leikurinn var tæplega fimm mínútna gamall þegar Heung-Min Son slapp inn fyrir vörn Man City. Suður-Kóreumaðurinn skoraði örugglega framhjá Ederson og heimamenn komnir í forystu. Aymeric Laporte virtist vera að jafna metin eftir tæplega hálftíma leik en markið var dæmt af eftir að hafa verið skorað af VAR þar sem Gabriel Jesus handlék knöttinn í aðdraganda marksins. Gestirnir sóttu án afláts en sterkur varnarleikur heimamanna gerði það að verkum að Hugo Lloris þurfti sjaldan að taka á honum stóra sínum. Giovani Lo Celso kom inn á sem varamaður á 64.mínútu og hann hafði verið inn á vellinum í rétt rúmar 30 sekúndur þegar hann tvöfaldaði forystu Tottenham eftir góðan undirbúning Harry Kane. Fleiri urðu mörkin ekki og 2-0 sigur Tottenham staðreynd. Sanngjörn úrslit þó Man City hafi verið miklu meira með boltann í leiknum. Enski boltinn
Uppgjör: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Körfubolti
Uppgjör: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Körfubolti