Fótbolti

Einkunnir Íslands á Parken: Alex, varnar- og varamenn stóðu sig best

Íþróttadeild Vísis skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson, Thomas Delaney og Aron Einar Gunnarsson í baráttunni áður en Alex handsamaði boltann.
Rúnar Alex Rúnarsson, Thomas Delaney og Aron Einar Gunnarsson í baráttunni áður en Alex handsamaði boltann. Getty/Lars Ronbog

Ísland var afar nálægt því að ná í sitt fyrsta stig í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld en varð að sætta sig við 2-1 tap gegn Dönum eftir að hafa fengið dæmd á sig tvö víti, það seinna í uppbótartíma.

Rúnar Alex Rúnarsson fékk tækifæri í marki Íslands og greip það vel, en frammistaða hans og hluta varnarinnar stóð upp úr í byrjunarliðinu á Parken. Þeir varamenn sem komu inn á í seinni hálfleiknum frískuðu upp á sóknarleikinn sem lengst af var ekki upp á marga fiska.

Erik Hamrén skipti átta mönnum út úr byrjunarliðinu sem mætti Ungverjum síðasta fimmtudag en þeim sem fengu að spreyta sig í kvöld gekk mjög misjafnlega að nýta sénsinn. 

Að neðan má sjá einkunnir leikmanna íslenska liðsins.

Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður 7

Öruggur í fyrirgjöfum og yfirvegaður með boltann á tánum. Varði mjög gott skot frá Eriksen í upphafi seinni hálfleiks og má vera afar stoltur af sinni frammistöðu þó að ekki hafi reynt mjög oft á hann.

Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 7

Afar samviskusamur í varnarleiknum, bakkaði liðsfélaga sína upp, og engin vandræði hans megin hvað það varðar. Nánast ósýnilegur í sóknarleiknum en skapaði þó hættu í eitt skipti. Tengdi lítið saman við Gylfa.

Sverrir Ingi Ingason, miðvörður 7

Pottþéttur í sínu hlutverki hægra megin í vörninni og vann vel saman með Hólmari og Birki Má.

Hólmar Örn Eyjólfsson, miðvörður 7

Jafnan vel staðsettur í miðri vörninni, rólegur og yfirvegaður þegar Ísland reyndi að halda boltanum. Virðist vaxa ásmegin í sínu hlutverki í landsliðinu.

Hörður Björgvin Magnússon, miðvörður 5

Ekki eins öruggur og félagar hans í vörninni og tengdi ekki nógu vel við Ara. Óheppinn að fá dæmt á sig víti í uppbótartíma eftir að skallað var í hönd hans. Losaði boltann nokkrum sinnum úr vörninni með löngum sendingum, sjálfsagt samkvæmt fyrirmælum, en þær sendingar fóru ætíð beint til Dana.

Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 6

Fékk dæmt á sig víti snemma leiks eftir að hafa misst Wass, sem mögulega var örlítið rangstæður, framhjá sér. Bætti fyrir það með silkimjúkri stungusendingu þegar Ísland jafnaði metin. Höndlaði varnarvinnuna ágætlega en Danir reyndu mun frekar að komast fram hans megin.

Arnór Sigurðsson, miðjumaður 3

Reyndi of mikið að gera hlutina sjálfur í þau skipti sem hann fékk boltann, sem voru ekki mörg, og sjaldan kom nokkuð út úr því. Skilaði varnarvinnunni ekki nægilega vel.

Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 5

Lengst af eins og að hugurinn væri enn í Búdapest og án þess eldmóðs sem við þekkjum hjá landsliðs-Gylfa. Spilaði boltanum þó vel frá sér eins og vanalega og ógnaði aðeins fram á við á lokakafla leiksins.

Birkir Bjarnason, miðjumaður 6

Virkaði frekar þungur á sér með boltann og spilaði frekar aftur en fram. Batt vörn og miðju ágætlega saman í varnarleiknum. Spilaði aðeins fyrri hálfleik.

Jón Daði Böðvarsson, framherji 4

Náði ekki að gera sér eða liðinu neinn mat úr misgáfulegum sendingum fram völlinn. Skapaði aldrei neina hættu nema þá helst með einum skalla eftir langt innkast. Fór af velli á 70. mínútu.

Albert Guðmundsson, framherji 4

Tókst ekki frekar en félaga sínum í fremstu víglínu að búa nokkuð til gegn dönsku vörninni, eða halda boltanum þannig að íslenska liðið gæti skilað sér fram. Missti boltann á afar slæmum stað í seinni hálfleik þegar Danir skoruðu mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Fór af velli á 74. mínútu.

Varamenn:

Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á fyrir Birki Bjarnason á 46. mínútu 7

Kom með mikla orku inn í íslenska liðið, á sínum stað á miðjunni, og átti sinn þátt í besta kafla þess á lokakaflanum. Vann fyrir boltanum í aðdraganda marksins.

Aron Einar Gunnarsson kom inn á fyrir Arnór Sigurðsson á 70. mínútu 7

Lét kannski ekki mjög mikið á sér bera en þegar Aron er inni á vellinum þá fúnkerar allt íslenska liðið betur.

Viðar Örn Kjartansson kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 70. mínútu 7

Skoraði afar laglegt mark og gaf sterklega til kynna að ástæða væri til að hleypa honum oftar nær marki mótherja íslenska landsliðsins, enda sannkallaður markahrókur.

Alfreð Finnbogason kom inn á fyrir Albert Guðmundsson á 74. mínútu

Spilaði ekki nóg til að fá einkunn.


Tengdar fréttir

Viðar Örn: Þeir refsa ef þú gerir ein mis­tök

Markaskorari Íslands var súr eftir tapið gegn Dönum en Viðar Örn Kjartansson var á því að Ísland hefði átt allavega stig skilið úr leik kvöldsins sem tapaðist 2-1.

Hann hoppar inn í mig og þetta er aldrei víti

„Fyrir mér er þetta aldrei víti,“ segir Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í fótbolta, sem fékk dæmt á sig víti í 2-1 tapinu gegn Danmörku í Þjóðadeildinni í kvöld.

Sjáðu Viðar Örn jafna metin á Parken

Viðar Örn Kjartansson þurfti ekki langan tíma til að setja mark sitt á leik Íslands og Danmerkur á Parken. Það dugði þó ekki til að fá stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×