Gylfi og félagar á toppnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Allan, Richarlison og Doucoure fagna sigurmarki Everton sem skaut þeim á toppinn.
Allan, Richarlison og Doucoure fagna sigurmarki Everton sem skaut þeim á toppinn. vísir/getty

Everton er með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar í enska boltanum. Bítlaborgarliðið vann 2-1 sigur á Crystal Palace á útivelli í dag.

Everton byrjaði mun betur og komst yfir á tíundu mínútu. Markið skoraði Dominic Calvert-Lewin, hans fimmta á leiktíðinni, eftir laglegt samspil.

Gestirnir náðu hins vegar að jafna einungis stundarfjórðungi síðar. Liðið fékk þá vítaspyrnu eftir að Kevin Friend skoðaði atvikið gaumgæfilega í VARskjánum.

Hinn brasilíski Richarlison steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Everton var 2-1 yfir í hálfleik og varðist vel í síðari hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson kom af bekknum er stundarfjórðungur var eftir og gerði vel í þann tíma sem hann spilaði.

Everton er með níu stig eftir fyrstu þrjá leikina og er þar af leiðandi á toppi deildarinnar. Leicester, Arsenal og Liverpool geta einnig verið með níu stig er umferðinni lýkur.

Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu er Millwall gerði 1-1 jafntefli við Brentford. Millwall með fimm stig eftir þrjár umferðir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira