Fótbolti

City úti­lokar að láta þrjá leik­menn fara fyrir Messi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bernardo Silva er ekkert að fara.
Bernardo Silva er ekkert að fara. vísir/getty

Manchester City hefur útilokað að láta þrjá leikmenn fara í skiptum við Lionel Messi en þetta hafa enskir miðlar staðfest.

Slúður hafa gengið um að City myndi láta þá Bernardo Silva, Riyad Mahrez og Gabriel Jesus fara í skiptum við Argentínumanninn.

Það ku þó ekki vera rétt og hefur City staðfest að þessir þrír leikmenn séu ekki á leið frá félaginu en Börsungar hafa einnig verið orðaðir við aðra leikmenn City.

Eric Garcia og Angelino hafa verið orðaðir við Barcelona og gætu orðið leikmenn Börsunga fyrir lokun félagaskiptagluggans 5. október en það myndi ekki verða hluti af Messi samningnum.

Það er ljóst að það verður fróðlegt að fylgjast áfram með Messi sögunni miklu og hvort að hann skipti um lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×