Arsenal fyrst í 8-liða úrslitin

Sindri Sverrisson skrifar
Sokratis fagnar marki sínu gegn Portsmouth í kvöld.
Sokratis fagnar marki sínu gegn Portsmouth í kvöld. vísir/getty

Arsenal átti ekki í neinum vandræðum með að slá út C-deildarlið Portsmouth í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.

Arsenal vann 2-0 sigur. Gríski miðvörðurinn Sokratis Papastathopoulos kom liðinu yfir rétt fyrir leikhlé og snemma í seinni hálfleik skoraði Eddie Nketiah seinna markið.

Spánverjinn Pablo Marí, sem er að láni frá Flamengo í Brasilíu, fékk sitt fyrsta tækifæri með Arsenal í kvöld og lék allan leikinn í vörninni. 

Það eina sem skyggði á sigur Arsenal var að Lucas Torreira meiddist í fyrri hálfleik og var borinn af velli.

Keppni í enska bikarnum heldur áfram annað kvöld þegar Chelsea og Liverpool mætast. Þá mætast einnig Reading og Sheffield United, og West Brom og Newcastle.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira