29 ára karlmaður ákærður fyrir moskuárásina í Lundúnum Eiður Þór Árnason skrifar 22. febrúar 2020 10:45 Árásarmaðurinn er sagður hafa vanið komur sínar í moskuna um nokkurra mánaða skeið. Vísir/Ap
29 ára karlmaður sem er sakaður um að hafa stungið bænakallara í mosku í London á fimmtudag hefur verið ákærður fyrir grófa líkamsárás og vörslu eggvopns. Mál árásarmannsins sem er sagður heita Daniel Horton verður tekið fyrir af dómstól í Lundúnum. Breska lögreglan segist ekki telja að árásin hafi verið tengd hryðjuverkum. Horton er sagður hafa ráðist á Raafat Maglad á meðan bænastund stóð yfir í London Central moskunni nálægt Regent's Park. Maglad, sem er um sjötugt, var fluttur á sjúkrahús með stungusár en var en fljótlega útskrifaður. Hann sneri aftur í moskuna á föstudag, innan við sólarhring eftir árásina. Hann segist hafa fyrirgefið árásarmanninum. Vitni segja að um hundrað gestir hafi verið í moskunni þegar Horton lét til skarar skríða á fimmtudag og stakk Maglad í öxlina. Um tuttugu moskugestir eru sagðir hafa stokkið á árásarmanninn til að stöðva hann. Vitni að árásinni segja að Horton hafi vanið komur sínar í moskuna um nokkurra mánaða skeið. Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna, og Boris Johnson forsætisráðherra hafa fordæmt árásina. Aukin löggæsla er nú á svæðinu í kjölfar atviksins.
Bretland England Tengdar fréttir Einn handtekinn eftir stunguárás í mosku í London Lögregla segir að árásin sé ekki rannsökuð sem hryðjuverk. 20. febrúar 2020 17:42 Mest lesið Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Erlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Benz brann í Breiðholti Innlent Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Minnihlutinn mætir ekki á morgun Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Erlent Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Minnst tveir drepnir í hefndarárásum Írana Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Segir Íran hafa farið yfir strikið Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Forsætisráðherra Spánar biður þjóðina afsökunar á spillingarmáli Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki Segir klerkastjórninni að semja áður en það „verður of seint“ Yfirtaka Trumps á þjóðvarðliðinu dæmd ólögleg en hann heldur stjórninni Íranir séu vikum eða mánuðum frá kjarnorkusprengju Leita vísbendinga um flugslysið og fleiri fórnarlamba Æðstiklerkurinn hótar hefndum og drónaárásir eru hafnar Ísraelar gera árásir á Íran „Hann er ástæðan fyrir því að það er ótti“ Öldungadeildarþingmaður borinn út af blaðamannafundi Staðfesta 241 andlát og einn eftirlifanda Réðust á tómstundamiðstöð fyrir útlendinga þegar óeirðir héldu áfram Telur að enginn hafi komist lífs af úr flugslysinu Ísraelar sagðir undirbúa árásir á Íran Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Þota með á þriðja hundrað manns brotlenti í íbúðahverfi Fækka í sendiráðinu í Bagdad vegna öryggisógnar Púað á Trump í Kennedy Center og mótmælin breiðast út Bandarískar herstöðvar verða reistar í Danmörku Ró að færast yfir LA eftir fjögur hundruð handtökur Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Súdanar flýja undan sveitum Haftars „Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Sjá meira
Einn handtekinn eftir stunguárás í mosku í London Lögregla segir að árásin sé ekki rannsökuð sem hryðjuverk. 20. febrúar 2020 17:42