Innlent

Snjó­flóð féll úr Kirkju­bóls­hlíð

Atli Ísleifsson skrifar
Kirkjubólsfjall í Skutulsfirði.
Kirkjubólsfjall í Skutulsfirði. Lögreglan á Vestfjörðum

Snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði rétt fyrir hádegi í dag. Flóðið náði yfir veginn.

Þetta kemur fram færslu lögreglunnar á Vestfjörðum. Þar segir að flóðið hafi lokað veginum um stund. Var vegurinn hreinsaður og svo opnaður á ný.

„Óhætt er talið að hafa veginn opinn áfram en vegfarendur eru beðnir um að aka með gát.

Móttökusvæðið við Funa hefur verið lokað af öryggisástæðum,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×