Innlent

Beint á ball í Njarðvík eftir bílslys á Njálsgötu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Magni Ásgeirsoni, Sævari Helgason, Heimir Eyvindarson, Þórir Gunnarsson og Stefán Ingimar Þórhallsson mynda Á móti sól.
Magni Ásgeirsoni, Sævari Helgason, Heimir Eyvindarson, Þórir Gunnarsson og Stefán Ingimar Þórhallsson mynda Á móti sól. Á móti sól

Meðlimir hljómsveitarinnar Á móti sól lentu í árekstri á Njálsgötu í Reykjavík í gær. Frá þessu greinir sveitin á Facebook. Sævar Helgason gítarleikari þurfti að leita aðhlynningar á Landspítalanum, en aðrir meðlimir sveitarinnar héldu leið sinni til Njarðvíkur áfram og spiluðu þar á balli.

„Í gær vorum við að leggja af stað til Njarðvíkur þar sem við áttum skömmu síðar að stíga á svið á balli. Við erum á leið upp Njálsgötuna þegar stór leigubíll á leið upp Vitastíginn lendir á afturhorninu á okkar bíl. Hraðinn á taxanum var slíkur að við snerumst í 180 gráður á punktinum en hann hélt áfram og klessti á kyrrstæðan bíl þar sem hann staðnæmdist,“ segir í færslu sveitarinnar.

Þeir greina frá því að við hafi tekið „frekar ringlaðar mínútur“ uns viðbragðsaðilar mættu á svæðið.

„Til að gera langa sögu stutta þá var farið með Sævar upp á landsa til athugunar þar sem hann rotaðist við höggið og kom seinna um kvöldið í ljós rifbeinsbrot og nokkrir fleiri fylgikvillar. Við hinir stauluðumst frekar lemstraðir upp í annan bíl og komum okkur til Njarðvíkur þar sem var gríðarlega vel tekið à móti okkur með kælipokum, nuddi og teygjubindum.“

Eftir ballið hafi sveitarmeðlimir síðan verið „reknir vinalega“ á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem vel hafi verið séð um þá. Þeir hafi síðan flestir lagst á koddann undir morgun.

„Við erum sum sé nokkuð hressir þannig séð. Innilegar þakkir til fagfólksis sem mætti fyrst á slysstað, þeirra sem sáu um Sævar okkar í nótt og Njarðvíkinga sem gripu okkur svona fallega,“ segir að lokum í Facebook-færslu sveitarinnar, sem samanstendur af þeim Magna Ásgeirssyni, Sævari Helgasyni, Heimi Eyvindarsyni, Þóri Gunnarssyni og Stefáni Ingimar Þórhallssyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×