Ronaldo hóf árið með þrennu | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Juventus í deildarleik í dag.
Ronaldo skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Juventus í deildarleik í dag. vísir/getty

Cristiano Ronaldo skoraði þrennu þegar Juventus vann 4-0 sigur á Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Öll mörkin komu í seinni hálfleik.

Þetta var fyrsti leikur Juventus á árinu 2020. Með sigrinum komst liðið á topp deildarinnar. Inter getur endurheimt toppsætið með sigri á Napoli í kvöld.

Ronaldo kom Juventus yfir á 49. mínútu þegar hann nýtti sér varnarmistök Cagliari.

Á 67. mínútu fiskaði Paolo Dybala vítaspyrnu. Ronaldo fór á punktinn og skoraði af öryggi.

Gonzalo Higuaín skoraði þriðja mark Juventus á 81. mínútu og aðeins mínútu seinna skoraði Ronaldo þriðja mark sitt og fjórða mark heimamanna.



Þetta var fyrsta þrenna Ronaldos í ítölsku úrvalsdeildinni og í fyrsta sinn í tæp tvö ár sem hann skorar þrjú mörk eða meira í deildarleik.



Cagliari, sem hefur tapað þremur leikjum í röð, er í 6. sæti deildarinnar.

Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira