Hjól­hesta­spyrna og jafn­tefli hjá Chelsea | Þriðja tap Burnl­ey í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alireza Jahanbakhsh jafnar metin.
Alireza Jahanbakhsh jafnar metin. vísir/getty

Alireza Jahanbakhsh bjargaði stigi fyrir Brighton er liðið gerði jafntefli við Chelsea, 1-1, í fyrsta leik ársins í enska boltanum.

Chelsea komst yfir strax á tíundu mínútu leiksins er Cesar Azpilicueta kom gestunum yfir og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Alireza Jahanbakhsh skoraði jöfnunarmarkið sex mínútum fyrir leikslok og það var af dýrari gerðinni. Hjólhestaspyrna eftir hornspyrnu og lokatölur 1-1.







Chelsea er í 4. sæti deildarinnar með 36 stig, fimm stigum á undan Man. United sem leikur við Arsenal í kvöld. Brighton er í 13. sætinu.

Aston Villa vann 2-1 sigur á Burnley á útivelli. Wesley kom Villa yfir á 27. mínútu og stundarfjórðungi síðar tvöfaldaði Jack Grealish forystuna.

Chris Wood fór illa með þónokkur færi en náði hins vegar að skora tíu mínútum fyrir leikslok og minnka muninn fyrir Burnley.

Nær komust þeir ekki og þriðja tap Burnley í röð staðreynd en Jóhann Berg Guðmundsson lék síðari hálfleikinn.





Burnley er í 14. sætinu með 24 stig en Villa er í 16. sætinu með 21.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira