Fótbolti

Gladbach með í titilbaráttunni

Sindri Sverrisson skrifar
Ramy Bensebaini fagnar þriðja marki Gladbach í dag.
Ramy Bensebaini fagnar þriðja marki Gladbach í dag. VÍSIR/GETTY

Borussia Mönchengladbach er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Bayern München eftir 3-1 sútisigur gegn Eintracht Frankfurt í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Gladbach fór á flugi inn í þennan fyrsta leik sinn eftir kórónuveiruhléið og komst í 2-0 á fyrstu sjö mínútunum. Alassane Pléa skoraði á fyrstu mínútu og Marcus Thuram bætti við marki. Ramy Bensebaini innsiglaði sigurinn með marki úr víti á 73. mínútu en André Silva minnkaði þó muninn fyrir heimamenn.

Gladbach er með 52 stig í 3. sæti og komst stigi upp fyrir RB Leipzig sem gerði jafntefli við Freiburg fyrr í dag. Liðið er þremur stigum á eftir toppliði Bayern sem á leik til góða á morgun við Union Berlín. Dortmund er í 2. sæti með 54 stig. Frankfurt er í 13. sæti með 28 stig, stigi fyrir ofan Alfreð Finnbogason og félaga í Augsburg.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×