Fótbolti

Fimm skiptingar leyfðar og Íslendingarnir gætu fallið

Sindri Sverrisson skrifar
Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg eru nokkuð frá fallsvæðinu og mæta Wolfsburg á laugardaginn. Samúel Kári Friðjónsson er með Paderborn í botnsætinu en liðið leikur afar mikilvægan leik við Dusseldorf á laugardaginn.
Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg eru nokkuð frá fallsvæðinu og mæta Wolfsburg á laugardaginn. Samúel Kári Friðjónsson er með Paderborn í botnsætinu en liðið leikur afar mikilvægan leik við Dusseldorf á laugardaginn. SAMSETT/GETTY

Þjóðverjar hefja á laugardaginn keppni á ný í efstu deild karla í fótbolta eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Fimm skiptingar verða leyfðar hjá hvoru liði í hverjum leik, og 2-3 lið munu falla eins og á venjulegri leiktíð.

Keppni í frönsku deildinni hefur verið blásin af og enn er óvíst hvort og þá hvenær keppni í ensku, spænsku og ítölsku deildunum hefst að nýju, þó að stefnt sé að því að boltinn fari að rúlla í þeim deildum í júní.

Aðeins 213 manns á hverjum leik

Í Þýskalandi er hins vegar allt til reiðu. Leikmenn liðanna hafa verið aðskildir frá fjölskyldum og vinum, og aðeins fengið að vera á hóteli eða æfingasvæði síðustu vikuna. Sýni verða tekin af þeim reglulega til að kanna hvort þeir hafi smitast af Covid-19. Þeir mega ekki takast í hendur í leikjum og engar liðsmyndir verða teknar. Alls verða 213 manns á hverjum leik, þar af 98 í kringum völlinn (til að mynda leikmenn, þjálfarar, boltasækjarar og ljósmyndarar).

Eftir fund þýsku deildarinnar í dag var tilkynnt að tímabilið myndi halda áfram fram yfir 30. júní ef þess gerðist þörf. Einnig var ákveðið að lið mættu gera fimm skiptingar, í samræmi við tímabundið leyfi sem Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda, IFAB, hefur gefið. Þetta er gert vegna þess mikla leikjaálags sem fram undan er svo að hægt sé að klára mót. Liðin eiga ýmist níu eða tíu leiki eftir á tímabilinu.

Bayern München er á toppi deildarinnar og Robert Lewandowski markahæstur. Hér æfa Lewandowski og félagar í aðdraganda þess að keppni hefst að nýju í Þýskalandi.VÍSIR/GETTY

Eitt félag vildi að hætt yrði við fall

Keppni í þýsku 2. deildinni hefst einnig að nýju um helgina. Af 36 félögum í deildunum tveimur greiddi aðeins eitt atkvæði með því að lið myndu ekki falla úr deild á þessari leiktíð. Því munu tvö neðstu liðin í 1. deildinni falla, og liðið í 16. sæti fara í umspil við lið úr 2. deild upp á að forðast fall.

Að sama skapi verður áfram keppt um þýska meistaratitilinn og Evrópusæti. Bayern München var á miklu skriði þegar hlé var gert á leiktíðinni og er á toppnum með 55 stig. Skammt undan eru Dortmund (51), RB Leipzig (50) og Borussia Mönchengladbach (49).

Werder Bremen (18 stig) og Paderborn (16) eru í fallsætunum tveimur. Samúel Kári Friðjónsson er leikmaður Paderborn. Fortuna Düsseldorf er í umspilsfallsæti með 22 stig. Paderborn og Düsseldorf mætast einmitt á laugardag en Samúel verður ekki með vegna smávægilegra meiðsla, samkvæmt Fótbolta.net.  Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar, er með 27 stig í 14. sæti. Liðið mætir Wolfsburg á laugardaginn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×