Hugbúnaður til bjargar mannslífum 4. maí 2006 22:40
100 Íslendingar látast á íslenskum sjúkrahúsum árlega vegna óhappa við lyfjagjöf. Íslenskt fyrirtæki, TM Software, hefur hannað forrit sem tugir spítala víðs vegar um heim hafa keypt til að minnka líkurnar á mistökum. Fyrirtækið stefnir að sögn Garðars Más Birgissonar, forstjóra fyrirtækisins á Akureyri, að því að verða leiðandi fyrirtæki í upplýsingaiðnaði og það teygir orðið anga sína út um allan heim. Það er ekki síst heilsugæsluforrit sem stórminnkar líkurnar á lyfjamistökum innan spítala sem hefur gert garðinn frægan. Eins og fram kom hjá NFS í gær vantar nokkuð upp á skráningu óhappa innan spítala innanlands og segir Garðar að miðað við opinberar tölur erlendra ríkja megi ætla að allt að 100 Íslendingar látist á sjúkrastofnunum hér árlega vegna óhappa við lyfjagjöf. Tölur frá Bandaríkjunum sýna að þar látist um 7000 manns á spítölum árlega vegna óhappa við lyfjagjöf sem samsvarar því að ein Boeing breiðþota farist fullmönnuð einu sinni í mánuði. Fyrirtækið starfar á þremur stöðum á landinu, á Akureyri, í Kópavogi og á Egilsstöðum. 500 starfsmenn þess eru meðal annars í Chile, Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Noregi, Danmörku, Hollandi og Þýskalandi. Þá vinnur TM Software náið með Microsoft en starfsemi fyrirtækisins nær langt úr fyrir heilsugæslugeirann, þótt þar sé mikið verk óunnið. Tugir evrópskra sjúkrahúsa hafa tekið upp íslensk forrit frá TM en erlendir starfsmenn koma að hönnun þeirra. Þá eru íslenskar heilbrigðisstofnanir að verða sér úti um þennan búnað. Meðal eigenda TM Software eru Icelandair. KB-banki, Tryggingamiðstöðin og Nýsköpunarsjóður en stærstu hlutirnir eru í eigu einstaklinga. TM- Software hefur síðustu fjögur ár fengið viðurkenningu sem eitt af framsæknustu fyrirtækjum Evrópu.
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Fleiri fréttir Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Sjá meira