Óvissu um afdrif starfsmanna á Keflavíkurflugvelli aflétt 4. maí 2006 17:47
Allir starfsmenn sem sagt hefur verið upp störfum á Keflavíkurflugvelli og heyra undir nýstofnaða Flugmálastjórn þar, geta fengið vinnu hjá hinni nýju stofnun. Geir h Haarde, utanríkisráðherra, segir stofnunina setta á laggirnar til bráðabyrgða en í framtíðinni muni starfsemin á Keflavíkurflugvelli heyra undir samgönguráðuneytið.Utanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpi um stofnun Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli á Alþingi í dag. Málið verður afgreitt með sérstöku hraði, þar sem stefnt er að því að afgreiða það sem lög frá Alþingi í dag. Margs konar starfsemi á Keflavíkurflugvelli mun heyra undir hina nýju stofnun, meðal annars slökkvilið og rekstur flugbrauta. En öllu því starfsfólki sem sinnir þessum störfum fyrir Varnarliðið í dag, hefur verið sagt upp störfum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að allir þeir sem starfað hafa við rekstur flugvallarins hjá Varnarliðinu verði endurráðnir og staða þeirra ekki auglýst sérstaklega.Mjög óvenjulegt er að tvær Flugmálastjórnir séu reknar í einu þjóðríki. Það hefur í raunin á Íslandi í áratugi samkvæmt sérstakri reglugerð, jafnvel þótt Alþjóðaflugmálastofnunin hafi gert við það athugasemdir, enda samþykkir hún aðeins ein flugmálayfirvöld í hverju landi. Nú eru hins vegar tvær flugmálastjórnir staðfestar með lögum. Lögin gera þó ráð fyrir að Flugmálastjórn Íslands beri ábyrgð á flugvernd og flugöryggi á Keflavík. Utanríkisráðherra segir þetta ástand ekki eiga að vara til langframa heldur sé það hans skoðun að hann verði síðar fluttur undir Samgönguráðuneytið.
Fréttir Innlent Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira