Raforkunotkun eykst um fimmtung á aðfangadag Höskuldur Kári Schram skrifar 24. desember 2014 13:58
Raforkunotkun höfuðborgarbúa eykst að jafnaði um allt að tuttugu og fimm prósent á aðfangadag og nær hámarki þegar jólasteikin er komin inn í ofninn. Mikið vatn hefur hins vegar runnið til sjávar síðan skammta þurfti orku til að draga úr álagi í aðdraganda jóla. Ýmislegt má lesa út úr mælum orkuveitu Reykjavíkur sem gefur vísbendingar um daglega hegðun borgarbúa. Meðal annars sýna dælur hitaveitunnar að fólk vaknar að jafnaði klukkutíma seinna á sunnudögum en á laugardögum. Á aðfangadag eykst svo orkunotkun gríðarlega enda eldavélar og önnur heimilistæki á fullu í aðdraganda jóla. „Ef við tökum svona frá því um kaffi þegar fólk fer að skerpa á eldavélunum og fram til sex þegar allar eldavélar eru á lokasprettinum með jólasteikina þá eru þetta svona 30-35 megavött,“ segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur Það er um 25% aukning miðað við venjulega rafmagnsnotkun, en notkunin bara á aðfangadag er um helmingur af allri sumarnotkun. Neðri lína á þessu línuriti sýnir orkunotkun á mánudegi eftir verslunarmannahelgi þegar hún er hvað minnst en efri línan noktun á aðfangadag. Eins og sést byrjar notkun að aukast upp úr hádegi og nær svo hámarki milli klukkan fjögur og sex þegar eldamennskan er komin á fullt. Um kvöldið dregur svo hratt úr notkun. Þeir sem eru komnir yfir miðjan aldur mun eflaust eftir því þegar rafmagn var skammtað á aðfangadag vegna álags. Þá voru rafmangstruflanir einnig algengar. „Hérna í gamla daga, svona fram yfir 1970, þá var bara rafmagnsskortur. Það var bara ekki framleitt nóg rafmagn fyrir höfuðborgarsvæðið. Síðast var það líklega snemma á 9. áratugnum. Þá kom upp stór bilun og þá þurfti að skammta rafmagn þess vegna. Bilanir geta alltaf gerst en rafmagnsskortur er liðin tíð, held ég,“ segir Eiríkur.
Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Innlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fleiri fréttir Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Sjá meira