Enginn aðdragandi Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 5. desember 2014 11:15 Vel fór á með Ólöfu Nordal og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þegar sú fyrrnefnda tók við lyklavöldum í ráðuneytinu í gær. Fréttablaðið/GVA „
Tilfinningin er ólýsanleg. Ég er auðmjúk gagnvart þessu verkefni og í raun og veru lífinu öllu. Það eru þær tilfinningar sem bærast í brjósti mér. Þakklæti og auðmýkt,“ segir Ólöf Nordal, nýskipaður innanríkisráðherra. Ólöf tók við embættinu af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, sem ákvað að segja af sér í síðasta mánuði. Ólöf er ekki ókunnug stjórnmálum. Hæst ber varaformennsku hennar í Sjálfstæðisflokknum á árunum 2010 til 2013 og auk þess var hún þingmaður frá 2007 til ársins 2013. Haustið 2012 tilkynnti Ólöf, flestum að óvörum, að hún hygðist ekki gefa kost á sér fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hygðist hætta sem varaformaður á Landsfundi flokksins um vorið. Hún gaf á þeim tíma þær skýringar að maðurinn hennar, Tómas Már Sigurðsson, væri að taka við nýju starfi hjá Alcoa sem fól í sér flutning af landi brott. Ólöf flutti með Tómasi og börnum þeirra til Genf, þar sem þau bjuggu þar til á nýliðnu sumri. Hvað hefur breyst hjá Ólöfu síðan þá? „Það hefur margt breyst. Maðurinn minn fékk annað starf, sem gerir það að verkum að hann er nú meira og minna aldrei heima og er fluttur til New York. Ég var farin að hugleiða það áður en þetta nokkurn tímann kom upp hvort ég ætti kannski að vera heima. Ég gæti alveg eins verið heima og beðið eftir honum þar með alla mína fjölskyldu eins og að vera þarna úti. Síðan gerist það í vetur að yngsta dóttir okkar er komin í skóla hérna, líður óskaplega vel á Íslandi, enda er best að vera hér. Þannig að það eru svona hlutir sem hafa breyst. Svo náttúrulega kemur þetta tækifæri til viðbótar, það breytti miklu líka,“ segir Ólöf.„Ég er tilbúin“ Ólöf greindist í sumar með illkynja krabbameinsæxli sem var fjarlægt með skurðaðgerð og í kjölfarið undirgekkst hún nokkurra mánaða lyfjameðferð sem lauk í síðustu viku. Hún segist tilbúin í þetta verkefni sem embætti ráðherra í innanríkisráðuneytinu er, þrátt fyrir að svo stutt sé liðið frá veikindum hennar. „Ég er tilbúin. Þetta gekk afskaplega vel. Nú er ég bara komin í eftirlit eins og aðrir og búin að læra það að hugsa vel um sjálfa mig og hlusta á líkama minn. Það er búið að útskrifa mig af „dælustöðinni“ eins og ég kallaði það og ég er tilbúin til að takast á við þetta verkefni. Ég hefði ekki látið mér detta það í hug, af því ég ber það mikla virðingu, eins og við öll, fyrir þeim verkefnum sem ríkisstjórn Íslands sinnir, að taka að mér þetta verkefni nema af því ég héldi að ég gæti gert það. Það á við á öllum sviðum, bæði persónulega og eins þá út frá þessu starfi sem undir er,“ segir Ólöf.Hélt hún myndi detta úr stólnum Skipun Ólafar bar brátt að og kom flestum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á óvart. Ólöf segist sjálf hafa verið mjög hissa. „Það var eiginlega enginn aðdragandi að þessu. Ég var bara að hugsa um aðra hluti. Fyrir örfáum dögum kom formaður Sjálfstæðisflokksins og viðraði þessa hugmynd við mig og ég hélt að ég myndi detta úr stólnum. Þetta er auðvitað hans ákvörðun og hann spurði mig síðan á miðvikudagskvöld hvort ég væri reiðubúin að taka þetta að mér og ég jánkaði því.“ Margir voru kallaðir til að gegna ráðherraembættinu, þar á meðal nokkrir þingmenn sem nú sitja eftir með sárt ennið. En af hverju var Ólöf útvalin? Treystir formaður Sjálfstæðisflokksins ekki þingmönnum sínum til að gegna ráðherraembættum? „Ég get ekki svarað því hvernig hans ákvörðun er tekin, það þarf að spyrja hann að því. Ég veit hins vegar að það er mjög gott fólk í þingflokki Sjálfstæðisflokksins,“ segir hún. Ólöf þvertekur þó fyrir að þetta þýði að hún stefni aftur á þing í næstu kosningum. „Það er ekkert öruggt eins og ég hef lært. Ég var bara beðin um að taka að mér þetta verkefni, þetta starf og þetta embætti núna. Það var ekkert rætt meira í kringum það. Þessi ákvörðun er alveg sjálfstæð. Hún hefur ekki neitt með það að gera að ég sé að koma aftur í pólitík,“ segir Ólöf.Þarf svigrúm Ólöf tók við lyklunum að ráðuneytinu í gær. Hún segist fyrst og fremst hlakka til að kynnast fólkinu sem þar starfar. „Það er mjög gott fólk í innanríkisráðuneytinu. Mjög færir embættismenn sem margir hafa starfað þar lengi. Og sumir meira að segja það lengi að ég vann með þeim þegar ég tók mín fyrstu skref sem lögfræðingur í samgönguráðuneytinu. Ég hef fyrst og fremst hugleitt það að kynnast því fólki, kynnast þeim störfum sem þar eru og undirbúa mig undir þau verkefni sem eru framundan. Lengra er ég ekki komin og mér finnst ekki skynsamlegt fyrir mig að segja neitt meira strax. Ég vil bara gefa mér og okkur öllum þarna tíma og ráðrúm til þess að setja okkur vel inn í mál. Ég verð bara að fá svigrúm til þess að gera það og ég veit að fólk skilur það.“ Ýmislegt hefur gengið á í ráðuneytinu undanfarið ár en Ólöf er ekki hrædd um að það verði erfitt að vinna traust starfsmanna að nýju. „Ég kvíði því ekki. Ég veit að þetta er gott fólk sem þarna er og ég kem fersk að borðinu með aðeins sjálfa mig í farteskinu. Ég kvíði því alls ekki,“ segir Ólöf.Mikilvægt að ná niður skuldum Samhliða störfum í ráðuneytinu mun Ólöf eðli málsins samkvæmt setjast í ríkisstjórn. Hún segir að þar muni fjármálaráðherra eignast stuðningsaðila í þeirri forgangsröðun í ríkisfjármálum sem verið hefur. „Ég er eindreginn stuðningsmaður þess að við einhendum okkur sem fyrst í það að lækka skuldir og mér finnst við vera á réttri leið. Ég er ánægð með að sjá þær hagvaxtatölur sem við höfum séð og allir vísar sem við sjáum í efnahagsmálum eru jákvæðir. En það skiptir miklu máli um leið að halda fast utan um ríkisfjármálin. Ég veit að það eru mörg verkefni á sviði hins opinbera sem bíða og víða búið að kreppa að þessi erfiðu ár. En ég held að það sé mikilvægt að við höldum þetta út af því að við verðum að ná niður skuldunum. Við verðum að leggja inn í bankann, til þess að geta bætt lífskjörin á þann hátt sem við viljum. En við sjáum strax að það eru jákvæð teikn á lofti og ég er ánægð með það að og mun leggja mitt af mörkum í því,“ segir Ólöf að lokum.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Fleiri fréttir Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Sjá meira