Enski boltinn

Ferguson furðar sig á leikbanni Evra

Elvar Geir Magnússon skrifar
Frá atvikinu sem átti sér stað í apríl síðastliðnum. Nordic Photos / Getty Images
Frá atvikinu sem átti sér stað í apríl síðastliðnum. Nordic Photos / Getty Images

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er allt annað en sáttur við leikbannið sem enska knattspyrnusambandið dæmdi franska bakvörðinn Patrice Evra í.

Evra fékk fjögurra leikja bann og var gert að greiða 15 þúsund punda sekt fyrir hlut sinn í áflogum milli leikmanna United og vallarstarfsmanna Chelsea eftir leik liðanna á síðustu leiktíð.

„Af öllu því sem knattspyrnusambandið hefur gert okkur síðustu ár þá er þetta eitt það allra versta. Ég á erfitt með að trúa þessu. Það er ómögulegt að segja hvað þessir menn eru að hugsa," sagði Ferguson.

„Jafnvel þó ég myndi snæða morgunmat með þessum mönnum þá gæti ég ekki sagt hvað þeir væru að hugsa. En við erum að bíða eftir því að fá í hendurnar skrifleg rök fyrir þessu leikbanni. Svo kemur í ljós hvert næsta skref okkar í málinu verður."

Evra tekur út bannið í leikjum gegn Stoke og Middlesbrough í úrvalsdeildinni og bikarleikjum gegn Southamton og Derby.


Tengdar fréttir

Evra í fjögurra leikja bann

Franski bakvörðurinn Patrice Evra hjá Manchester United hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann og gert að greiða 15 þúsund punda sekt fyrir hlut sinn í áflogum milli leikmanna United og vallarstarfsmanna Chelsea eftir leik liðanna á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×