Sandrækja finnst hér við land 17. október 2005 23:42
Sandrækja (Crangon crangon) greindist í fyrsta sinn hér við land í vor. Tegundin fannst við sýnatöku á skarkolaseiðum við Álftanes en Hafrannsóknastofnunin hóf nýlega viðamiklar rannsóknir á líffræði skarkolaungviðis. Við frekari rannsóknir fannst tegundin víðar á Faxaflóasvæðinu, m.a. við Löngufjörur á Snæfellsnesi. Sandrækja er af hrossarækjuætt (Crangonidae) og er hún algeng með allri strönd meginlands Evrópu, meðfram ströndum Noregs og Bretlandseyja, að strönd Finnlands í Eystrasalti og inn í Miðjarðarhaf og Svartahaf. Hún er botnlæg og búsvæði hennar er aðallega á grunnsævi (0 -50 m) með sendnum eða leirkenndum botni. Hún er gráleit með svörtum eða dökkbrúnum þverröndum en hún breytir auðveldlega um lit og lagar sig að botngerðinni. Tegundin hefur lengi verið veidd til manneldis og er nafnið „hrossarækjuætt“ rakið til þess að hér áður fyrr fóru veiðarnar fram þannig að hestum var beitt fyrir trollið og það dregið í grunnum sjó þar sem ekki var hægt að koma við báti. Sandrækja er mikilvæg fæða fyrir ýmsar tegundir þorskfiska og flatfiska auk margra fuglategunda. Sjálf er rækjan mikilvirkur afræningi og sækist aðallega eftir fisklirfum eða -seiðum og hryggleysingjum. Því hefur samspil hennar og bráðar mikið verið rannsakað og sýna margar rannsóknir sterkt samband á milli afráns sandrækju og nýliðunar á skarkolaseiðum. Ættingi sandrækjunnar, hrossarækjan (Crangon allman), hefur fundist hér við land en hún lifir í dýpra vatni (20-250 m ). Undanfarin ár hefur afli sandrækju aukist í Norðursjó en minnkað að sama skapi sunnar, eða við strendur Frakklands og Belgíu. Jafnframt veiðist sandrækjan nokkuð dýpra en áður og eru þessar breytingar raktar til hærri sjávarhita. Síðastliðin 7 -8 ár hafa orðið töluverðar breytingar á hita og seltu í Atlantssjónum vestan við Ísland og hefur hitastig hækkað um tæplega eina gráðu. Á sama tíma hefur orðið vart við breytingar á útbreiðslu fiskitegunda hér við land. Sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar finnst því freistandi að draga þá ályktun að fundur sandrækjunnar hér við land sé tengdur þessum breytingum í sjónum en nánari rannsókna er þörf á líffræði og útbreiðslu hennar til að hægt sé að fullyrða um slíkt.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira