Hlutfallslega mesti vaskurinn hér 23. október 2005 15:04
Hvergi meðal ríkja innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD er hlutfall virðisaukaskatts af þjóðarframleiðslu hærra en á Íslandi. Hlutfall virðisaukaskatts af skatttekjum ríkissjóðs á Íslandi er jafnframt þriðja hæsta í löndum innan OECD. Aðeins í Mexíkó og Tyrklandi er hlutfallið hærra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá OECD. Hlutfall virðisaukaskatts af þjóðarframleiðslu á Íslandi er 16,3 prósent en til samanburðar er hlutfallið á hinum Norðurlöndunum á bilinu 13,3 í Svíþjóð til 16 í Danmörku. Skattur af þjónustu og matvöru er samkvæmt skýrslunni um 41 prósent af skatttekjum ríkissjóðs Íslands, eða þriðja hæsta. Hlutfallið er hæst í Mexíkó, um 53 prósent. Hlutfall skatttekna sem hlutfall af þjóðarframleiðslu á Íslandi jókst jafnframt mest allra ríkja OCED á milli áranna 2003 og 2004, eða um 2,1 prósentustig. Aðeins í tveimur öðrum ríkjum jókst hlutfallið um meira en eitt prósentustig, eða í Noregi um 1,5 prósentustig og 1,3 prósentustig í Danmörku. Ef horft er til áranna 1995 til 2003 jókst hlutfall skatttekna af þjóðarframleiðslu næstmest á Íslandi, eða um tæp 8 prósentustig. Aðeins í Tyrklandi jókst hlutfallið meir. Þá er skattur á fyrirtæki sem hlutfall af skatttekjum næstlægstur á Íslandi, eða 3,9 prósent. Hlutfallið er lægst í Þýskalandi þar sem það er 3,4 prósent af skatttekjum. Hæst er hlutfallið í Noregi og Lúxembúrg, eða 19 prósent. Fram kemur að hlutfall skatttekna sem rennur til ríkissjóðs miðað við hlutfall sem rennur til að mynda til sveitarstjórna, er einungis hærra en á Íslandi í fimm löndum innan OECD. Hlutfallið á Íslandi árið 2003 var um 75 prósent til ríkissjóðs á móti 25 prósentum til sveitarstjórna, samkvæmt skýrslunni. Ísland er í tíunda sæti þegar horft er til hlutfalls skatttekna af þjóðarframleiðslu og eru öll hin Norðurlöndin þar ofar á lista. Árni Mathiesen fjármálaráðherra vildi ekki tjá sig um skýrsluna þar sem hann hafði ekki kynnt sér hana.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira