„I´ll fucking kill you motherfuckers“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2014 10:41 Vísir/Pjetur
Mál á hendur átján ára pilti fyrir líkamsárás auk líflátshótana í garð lögreglumanna var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Manninum er gefið að sök að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 8. ágúst 2012, skammt frá Stöðinni við Suðurfell 4, ráðist með ofbeldi á mann, tveimur árum eldri, sem þá var á átjánda ári. Sló hann manninn nokkrum hnefahöggum í höfuðið svo hann féll í götuna, því næst sparkaði hann ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá í götunni. Afleiðingarnar urðu þær að maðurinn hlaut 10 sm langt fleiður hægra megin við nef, yfirborðsáverka á hársverði, eymsli yfir neðanverðum rifjaboga beggja vegna og eymsli og hrufl yfir vinstri úlnlið eins og kemur fram í ákæru. Maðurinn játaði sök í ofangreindum atriðum. Hann neitaði hins vegar sök í þeim ákæruliðum sem snúa að því er gerðist eftir að lögreglu bar að garði. Þá á maðurinn að hafa ráðist á lögreglumann og kýlt hann tvisvar í andlitið. Hlaut lögreglumaðurinn eymsli yfir neðanverðum rifjaboga beggja vegna og eymsli og hrufl yfir vinstri úlnlið. Maðurinn hrækti þvínæst á lögreglumann, hafnaði hrákan á buxum lögreglumannsins, og í kjölfarið hótaði hann lögreglumönnunum lífláti með því að segja við þá ítrekað „I´ll fucking kill you motherfuckers“ að því er segir í ákærunni. Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira