Solskjær ekki með samning við Molde Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. mars 2019 08:30 Ole Gunnar Solskjær stefnir aftur til Noregs ef hann fær ekki starfið hjá United. vísir/getty
Ole Gunnar Solskjær, bráðabirgðastjóri Manchester United, viðurkennir að hann viti ekki alveg hvort hann sé með samning hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Molde en hann stefnir að því að stýra því áfram ef hann fær ekki starfið hjá United. Solskjær á enn þá eftir að tapa leik í deild eða bikar með United og er með liðið í baráttu um Meistaradeildarsæti og enska bikarinn en PSG er eina liðið sem er búið að leggja United að velli. United mætir Frakklandsmeisturunum einmitt í kvöld í seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem að PSG hefur 2-0 forskot eftir fyrri leikinn á Old Trafford. Fyrst þegar að Solskjær mætti til starfa var talað um að hann væri á láni frá Molde en nú er búið að taka frétt um að hann hafi skrifað undir nýjan þriggja ára samning við norska félagið af heimasíðu þess. „Ég veit ekki alveg hvernig þetta virkar,“ segir Solskjær í hlaðvarpinu Fotbalklubben en á Twitter-síðu hans segist hann enn þá vera stjóri Molde. „Ég held að samningurinn minn hjá Molde sé runninn út og nú er ég bara samningsbundinn Manchester United. Kannski þarf ég annan samning til þess að snúa aftur til Molde. Við sjáum til hvað gerist en ég stefni að því að fara aftur þangað,“ segir Ole Gunnar.Í frétt Sky Sports um málið segir að þjálfarar mega bara vera með samning við eitt félag í einu sama hvort þeir séu mættir til að stoppa stutt eins og Solskjær ætlaði sér upphaflega að gera hjá United. Manchester United er búið að spila 16 leiki undir stjórn Solskjær og vinna þrettán þeirra, gera tvö jafntefli og tapa aðeins einum.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira