City borgaði riftunarákvæði Rodri Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. júlí 2019 16:00 Rodri nálgast Englandsmeistarana vísir/getty
Manchester City er við það að gera miðjumanninn Rodri að dýrasta leikmanni félagsins, en Englandsmeistararnir eru búnir virkja riftunarákvæði í samningi hans við Atletico Madrid. Atletico staðfesti það í dag að Manchester City hefði borgað 62,6 milljón punda gjaldið til þess að virkja riftunarákvæðið í dag, miðvikudag. Rodri má því orðið semja um kjör við City og fara til Manchester í læknisskoðun. Rodri verður dýrasti leikmaður í sögu City, en þann titil átti Riyad Mahrez. Mahrez kostaði City 60 milljónir punda þegar hann var fenginn frá Leicester í fyrra. Spænski miðjumaðurinn var aðeins búinn með ár af samningi sínum við Atletico, hann kom þangað frá Villarreal síðasta sumar. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 34 deildarleikum. Hann spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Spánverja í vináttuleik við Þjóðverja á síðasta ári og hefur síðan komið við sögu í fimm landsleikjum til viðbótar. Hinn 23 ára Rodri er varnarsinnaður miðjumaður og var hann einn af efstu mönnum á óskalista Pep Guardiola í sumar.
Enski boltinn Mest lesið „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Íslenski boltinn Goðsögnin sem tortímdi ferlinum handtekinn í Dúbæ og framseldur Sport Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Enski boltinn Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti Dæmd fyrir að stela af liðsfélaga í landsliðinu en nær Ólympíuleikunum Sport Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Fótbolti Fleiri fréttir Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Sjá meira