Messan: Hjörvar og Gunnleifur rifust um markið sem Liverpool fékk á sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2019 10:30 Ryan Babel skorar hér markið sitt eftir mistök Alisson Becker og Virgil van Dijk. Getty/Marc Atkins
Messustrákarnir voru ekki sammála um aðalsökudólginn í marki sem hefði getað orðið Liverpool dýrkeypt í titilbaráttunni. Svo varð þó ekki en markið var samt tilefni deilna í Messunni í gær. Liverpool lenti í vandræðum á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar stór varnarmistök færðu Fulham jöfnunarmark á silfurfati. Hjörvar Hafliðason og Gunnleifur Gunnleifsson eru báðir markverðir en þeir voru samt sem ekki sammála um það hvor átti meiri sök á markinu Alisson Becker, markvörður Liverpool, eða varnarmaðurinn Virgil van Dijk. Hjörvar setti skuldina á Alisson Becker og fannst að brasilíski markvörðurinn hafi átt möguleika á að komast í boltann og þá annaðhvort kýla hann í burtu eða grípa hann. „Þetta er Van Dijk að kenna því hann sér hvar markvörðurinn er staðsettur,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson og bætti við: „Hann á að skalla boltann fastar eða bara upp í loftið,“ sagði Gunnleifur. Hjörvar var ekki sammála. „Alisson á bara að kasta sér á þetta.,“ sagði Hjörvar en Gunnleifur greip strax inn í. „Hann á ekki að þurfa að kasta sér á neitt þarna,“ sagði Gunnleifur. Hjörvar notar sjónarhornið fyrir aftan markið til að styðja sitt mál um að Alisson Becker hafi haft tækifæri til að koma út úr markinu og taka boltann. Það má sjá allt rifrildi Hjörvars og Gunnleifs um markið með því að smella á myndbandið hér fyrir neðan.Klippa: Messan: Hvort var þetta Alisson eða Van Dijk að kenna?
Enski boltinn Mest lesið Shearer ósáttur við Isak: „Þú getur ekki gert þetta“ Enski boltinn Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Sjáðu hjólhestaspyrnu Richarlisons, markasúpu City og öll hin Fótbolti Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Forest kaupir tvo úr Evrópumeistaraliði Englands Enski boltinn Aðlögunar krafist eftir U-beygju Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Fyrsti risaleikur tímabilsins Sport Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Nýja stjarnan í þungavigtinni rotaði Whyte á innan við tveimur mínútum Sport Hafði ekki keppt í 376 daga en náði samt besta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Eze og Guehi byrja hjá Palace þrátt fyrir óvissuna Shearer ósáttur við Isak: „Þú getur ekki gert þetta“ Forest kaupir tvo úr Evrópumeistaraliði Englands Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjá meira