Stórbrotin aukaspyrna Rashford skaut United í átta liða úrslitin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rashford þrumar aukaspyrnunni í netið.
Rashford þrumar aukaspyrnunni í netið. vísir/getty
Manchester United er komið í átta liða úrslit enska deildarbikarsins eftir 2-1 sigur á Chelsea í leik liðanna á Brúnni í kvöld.

United komst yfir með marki úr vítaspyrnu. Þeir klúðruðu tveimur vítaspyrnum um helgina en Marcus Rashford steig á punktinn á 25. mínútu í leiknum í kvöld og skoraði.

Þannig stóðu leikar allt þangað til á 61. mínútu er hinn belgíski Michy Batshuayi skoraði með sínu öðru marki á innan við viku. Hann skoraði sigurmark Chelsea gegn Ajax í síðustu viku.

Sigurmarkið kom hins vegar United megin þegar um stundarfjórðungur var eftir en markið skoraði Rashford úr aukaspyrnu. Hún var algjörlega stórkostleg, upp í bláhornið. Lokatölur 2-1.







Chelsea er því úr leik þetta árið í enska deildarbikarnum en United er komið áfram ásamt Liverpool, Everton, Leicester, Colchester, Man. City, Oxford og Aston Villa.

Villa vann 2-1 sigur á Wolves í kvöld. Anwar El-Ghazi kom þeim yfir í fyrri hálfleik en á 54. mínútu jafnaði Patrick Cutrona. Ahmed El Mohamady skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira