Meistararnir minnkuðu forskot Liverpool í þrjú stig

Anton Ingi Leifsson skrifar
City fagnar marki í dag.
City fagnar marki í dag. vísir/getty
Manchester City minnkaði forskot Liverpool niður í þrjú stig eftir 3-0 sigur á nýliðum Aston Villa í 10. umferðinni á Etihad-leikvanginum í dag.

Markalaust var í hálfleik en á fyrstu mínútu síðari hálfleiks komust meistararnir yfir. Löng sending Ederson var komið áfram af Gabriel Jesus á Raheem Sterling sem skoraði.







Annað markið kom á 64. mínútu. City tók þá stutt horn, Kevin de Bruyne gaf frábæra sendingu fyrir markið þar sem hinn spænski David Silva kom boltanum yfir línuna.

Þriðja og síðasta mark leiksins kom fimm mínútum er síðar er Ilkay Gundogan skoraði með góðu skoti.

Lokatölur 3-0 en City missti mann af velli undir lokin er Fernandinho fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.







City er því með 22 stig í öðru sætinu en Liverpool á toppnum með 25 stig. Liverpool spilar gegn Tottenham á morgun.

Aston Vlla er með ellefu stig í 13. sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira