Innlent

Slökkvi­lið kallað út að Heiðar­skóla í Reykja­nes­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Sex slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang.
Sex slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang. vísir/einar árnason
Slökkvilið hjá Brunavörnum Suðurnesja hefur verið kallað út eftir að tilkynnt var um eld í Heiðarskóla við Heiðarhvamm í Reykjanesbæ.

Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesjum var tilkynnt um eld í ljósi við sundlaugina í skólanum. Slökkvilið sé komið á staðinn og virðist sem að um minniháttar eld hafi verið að ræða.

Rafmagn var slegið út í skólanum eftir að tilkynnt var um eldinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×