Erlent

Stefnir í hægri sveiflu og stjórnarskipti í Færeyjum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Þórshöfn í Færeyjum. Skrifstofur lögmanns og landsstjórnarinnar eru á Þinganesi, í rauðu húsunum.
Frá Þórshöfn í Færeyjum. Skrifstofur lögmanns og landsstjórnarinnar eru á Þinganesi, í rauðu húsunum. Mynd/Kringvarp Færeyja.
Færeyingar hafa aldrei séð eins mikið kraðak af kosningaspjöldum eins og nú en þingkosningar fara fram í Færeyjum á laugardag. Skoðanakannanir benda til hægri sveiflu og að núverandi vinstristjórn tapi meirihluta sínum. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2. 

Það fer víst ekki framhjá neinum sem ekur um Færeyjar þessa dagana að þar eru kosningar framundan. Skoðanakannanir benda til stjórnarskipta og að vinstristjórn Aksels V. Johannesen, lögmanns Færeyja, missi meirihluta sinn.

Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja og leiðtogi Javnaðarflokksins.Mynd/Jens Jákup Hansen, KVF.
Aksel er leiðtogi Javnaðarflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar, og hefur stýrt Færeyjum undanfarin fjögur í samsteypustjórn með Tjóðveldisflokki Høgna Hoydal, systurflokki Vinstri grænna. Jafnframt hefur lítill flokkur á miðjunni, Framsókn, undir forystu Pouls Michelsens, verið aðili að stjórninni. 

Kannanir benda til að báðir vinstriflokkarnir tapi einum manni hvor og þar með falli stjórnarmeirihlutinn, fái 15 sæti en stjórnarandstaðan 18, af 33 þingsætum á Lögþinginu.

Jørgen Niclasen, leiðtogi Fólkaflokksins, gæti orðið næsti lögmaður FæreyjaMynd/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Fólkaflokkurinn undir forystu Jørgens Niclasen, stefnir í að verða sigurvegari kosninganna, en spáð er að hann verði stærsti flokkurinn, og bæti við sig tveimur þingsætum, fari úr sex sætum upp í átta, samkvæmt Gallup. Sambandsflokknum, undir forystu Bárðar Nielsen, er einnig spáð fylgisaukningu, en báðir teljast þessir flokkar hægra megin við miðju. 

Saman er þeim spáð 15 þingsætum og ef svo færi vantaði þá tvö sæti upp á að geta myndað meirihluta. Tveimur miðjuflokkum, Framsókn og Miðflokknum, er spáð tveimur þingsætum hvorum, og því líklegt að annar hvor þeirra eða báðir geti ráðið úrslitum um stjórnarmyndun.

Mergð kosningaskilta meðfram umferðargötum hefur einkennt kosningabaráttuna í Færeyjum.Mynd/Kringvarp Færeyja.
Í kosningabaráttunni hefur meðal annars verið tekist á um hefðbundnar vinstri- og hægriáherslur, sjálfstæðismálin gagnvart Dönum, en einnig um nýlegar breytingar á fiskveiðilöggjöfinni, byggðastefnu og kjördæmaskipan en margir telja það hafa verið mistök fyrir tíu árum að gera Færeyjar að einu kjördæmi. Samgöngur, heilbrigðis- og húsnæðismál hafa einnig verið áberandi. 

Þá hefur nýr flokkur, sem hefur það eina markmið að lögleiða kannabis, vakið athygli en honum er þó aðeins spáð eins prósents fylgi. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Segir Færeyjar verða stærri með göngum

Færeyingar hafa verið sex sinnum afkastameiri en Íslendingar í jarðgangagerð, - ein göngin grófu þeir fyrir fimmtán íbúa, - og nú áforma þeir fimm ný jarðgöng. Fjármálaráðherrann þeirra segir að ef bara ætti að hugsa um hagkvæmni væri best að hafa alla Færeyinga í einni blokk. Öflugt þjóðvegavegakerfi er með því fyrsta sem Íslendingur á ferð um Færeyjar tekur eftir. Hver einasti kílómetri er malbikaður. Engir malarvegir.

Þetta eru jarðgöngin sem bylta Færeyjum

Framkvæmdir eru hafnar við mesta samgöngumannvirki Færeyja, ellefu kílómetra löng neðansjávargöng sem stytta aksturstímann milli Þórshafnar og Klakksvíkur um helming.

Færeyingar halda áfram að selja Rússum fisk

Færeyingar styðja ekki viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Þetta kom fram í máli Aksels Johannessen, lögmanns Færeyja, á fyrsta fundi 67. þings Norðurlandaráðs í Hörpu í gær.

Skálað fyrir bestu vinum Íslendinga

Tveir íslenskir ráðherrar gerðu sér sérstaka ferð til Færeyja í vikunni til að þakka Færeyingum þann vinarhug sem þeir sýndu Íslendingum eftir hrunið. Ritað var undir viljayfirlýsingu í Þórshöfn um að efla samstarf frændþjóðanna, einkum á sviði orkumála og nýsköpunar. Þau Katrín Júlíusdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, ráðherrar fjármála- og atvinnuvega, fengu hlýjar móttökur af hálfu Færeyinga, sem sýndu þeim nokkrar helstu perlur eyjanna, eins og Sörvogsfjörð og þorpið Böur en einnig öflug atvinnufyrirtæki eins og laxeldisstöðvar, en eldislax er orðinn verðmætasta útflutningsvara Færeyja.

Forsetahjónin komin í heimsókn til Færeyja

Íslendingar njóta þess að eiga bestu granna í heimi, verða skilaboð forseta Íslands til Færeyinga en Guðni Th. Jóhannesson, og frú Eliza Reed, héldu í dag í fimm daga heimsókn til Færeyja.

Þrenn jarðgöng grafin samtímis í Færeyjum

Færeyingar eru að hefjast handa við enn ein jarðgöngin, Hvalbiargöngin. Þessi jarðgangagerð bætist við tvær aðrar risaframkvæmdir; gerð tveggja neðansjávarganga.

Nýja stjórnin stefnir á fullveldi

Aksel V. Johannesen, formaður Jafnaðarflokksins í Færeyjum, kynnti í gær nýja landstjórn sína, sem er samsteypustjórn með Þjóðveldi og Framsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×