Viðskipti erlent

Lögþing Færeyja samþykkti einróma nýtt olíuleitarútboð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Borpallur á Skálafirði í Færeyjum haustið 2014 að lokinni borun níundu holunnar á landgrunni eyjanna. Hann kom til viðhalds í Rúnavík.
Borpallur á Skálafirði í Færeyjum haustið 2014 að lokinni borun níundu holunnar á landgrunni eyjanna. Hann kom til viðhalds í Rúnavík. Atlantic Supply Base/Eli Lassen.
Lögþing Færeyja samþykkti einróma fyrir helgi að hefja nýtt olíuleitarútboð í lögsögu eyjanna, að þessu sinni í samstarfi við Breta. Jafnframt var ákveðið að lækka gjöld af olíuvinnslu. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. 

Olíuboranir á landgrunni Færeyja hófust árið 2000 og hafa alls níu holur verið boraðar, sú síðasta árið 2014, án þess að olía í vinnanlegu magni hafi fundist. Þótt leitin hafi þannig ekki skilað tilætluðum árangri hafa fylgt henni mikil umsvif og tóku Færeyingar meðal annars að sér að klassa olíuborpall eftir síðustu borun.

Síðasta olíuleitarútboð fyrir tveimur árum reyndist endasleppt og skilaði aðeins einni umsókn og lauk því ferli með því að hún var dregin til baka í fyrra. En Færeyingar hafa ekki gefið upp alla von og hafa miklir olíufundir vestur af Hjaltlandi, skammt frá lögsögumörkum Færeyja, ýtt undir bjartsýni þeirra. 

Borpallurinn Cosl Pioneer boraði við Færeyjar sumarið 2012 á vegum Statoil og Exxon-Mobil. Borsvæðið var um 80 kílómetra suðaustur af eyjunum.
Lögþing Færeyja samþykkti í síðustu viku frumvarp Pouls Michelsens atvinnumálaráðherra um að hefja nýtt olíuleitarútboð síðar á árinu, það fimmta í röðinni, að því er fram kom í frétt Kringvarpsins. Einhugur virðist hafa ríkt meðal þingmanna en frumvarpið var samþykkt með 25 samhljóða atkvæðum og var enginn á móti. Þó sat einn þingmaður hjá eftir aðra umræðu þar sem hann vildi ekki styðja niðurfellingu framleiðslugjalds af olíuvinnslu.

Raunar komu einnig fram þau sjónarmið að minnka þyrfti enn frekar þann mun sem væri á skattheimtu Færeyja og Bretlands af olíuvinnslu. Meðan bresk stjórnvöld tækju 40 prósent í samanlögðum sköttum tækju færeysk 56 prósent. 

Lögþing Færeyja í Þórshöfn.Mynd/Lögþingið.
Leitarsvæðið er við miðlínuna við Hjaltland og hyggjast Færeyingar hafa samstarf við bresk stjórnvöld, sem einnig áforma útboð Hjaltlandsmegin. Er það til að olíufélög geti samtímis leitað beggja vegna en líkur eru taldar á að olíulindir geti teygt sig yfir lögsögumörkin. 

Á færeyska vefnum Oljan.fo kemur fram að spurningum um græna og sjálfbæra orku hafi verið velt upp í umræðum í Lögþinginu. Sagt er að nokkrir þingmenn hafi lýst svipuðum sjónarmiðum og Kai Leo Johannesen, þingmaður Sambandsflokksins og fyrrum lögmaður Færeyja; að fremur en að banna olíu- og gasvinnslu ættu Færeyingar að þrýsta meira á önnur ríki að draga úr kolabrennslu, sem væri mesta ógnin gagnvart loftlagsbreytingum. Hann hafi einnig sagt að svo lengi sem stór hluti heims hefði þörf á kolvetnum til að tryggja velferð samfélaga lýsti það ábyrgð að leita að og vinna olíu. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

 


Tengdar fréttir

Óvenjulegt ákvæði felldi niður risaskuld Færeyja

Færeyingar urðu skyndilega átta milljörðum króna ríkari í dag vegna þess að engin olía hefur ennþá fundist við eyjarnar. Fjárhæðin jafngildir því að íslenska þjóðin hefði fengið sextíu milljarða króna happadrættisvinning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×