Bíó og sjónvarp

Hinn nýi Defender á tökustað James Bond 

Finnur Thorlacius skrifar
Nýi Defenderinn var ekki í neinum
feluklæðum á tökustað nýjustu
Bond-myndarinnar fyrir skömmu.
Nýi Defenderinn var ekki í neinum feluklæðum á tökustað nýjustu Bond-myndarinnar fyrir skömmu. Instagram
Nú standa yfir tökur á nýrri James Bond mynd, No Time to Die, en svo virðist sem hinn nýi Land Rover Defender hafi hlutverki að gegna í myndinni. Til bílsins sást á settinu fyrir skömmu og það algerlega án feluklæða.

Því má hér sjá endanlegt útlit þessa goðsagnakennda bíls sem hefur ekki verið í framleiðslu nú í nokkurn tíma, en stutt er í að hann komi aftur á markað. Eins og á myndinni sést er bíllinn áfram ansi kassalaga, en þó með örlítið nýtískulegri og mýkri línum en forverinn og ekki fer hjá því að sjá megi ættarsvip með bílnum og nýjasta Range Rover. Þar er ekki leiðum að líkjast.

Á myndinni að dæma má einnig sjá að bíllinn stendur hátt frá vegi og mikið bil er á milli dekkja hans og brettanna og má leiða að því líkur að bíllinn atarna sé með hækkanlega loftpúðafjöðrun. Ekki verður langt að bíða þess að Land Rover sýni almenningi alla dýrðina, en bíllinn mun að öllum líkindum standa á pöllunum á bílasýningunni í Frankfurt sem hefst 10. september. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en á næsta ári.


Tengdar fréttir

Búið að tilkynna titil næstu Bond-myndar

Næsta Bond-mynd, sem verður sú 25. í röðinni, mun bera titilinn „No Time to Die“, sem á íslensku myndi útleggjast sem „Enginn tími til að deyja“.

Lynch sögð leika 007 í næstu Bond-mynd

Talið er að breska leikkonan Lashana Lynch, sem meðal annars hefur leikið í myndum á borð við Captain Marvel, leiki hlutverk útsendara bresku krúnunnar,






Fleiri fréttir

Sjá meira


×