Enski boltinn

Nýliðarnir fá bakvörð frá Southampton

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Targett kemur með reynslu úr úrvalsdeildinni inn í lið Aston Villa sem hefur ekki spilað í efstu deild frá 2016
Targett kemur með reynslu úr úrvalsdeildinni inn í lið Aston Villa sem hefur ekki spilað í efstu deild frá 2016 vísir/getty
Nýliðar Aston Villa halda áfram að styrkja sig fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni, Villa hefur komist að samkomulagi við Southampton um kaup á Matt Targett.

Sky Sports greinir frá því að Villa og Southampton hafi samþykkt 14 milljóna punda kaupverð á vinstri bakverðinum.

Targett kom við sögu í 21 leik hjá Southampton síðasta vetur og hefur alls spilað 63 leiki síðan hann þreytti frumraun sína fyrir fimm árum.

Villa hefur nú þegar fengið til sín framherjann Wesley frá Club Brugge og kantmanninn Jota frá Birmingham.

Targett verður liðsfélagi Birkis Bjarnasonar hjá Aston Villa fari svo að íslenski landsliðsmaðurinn verði áfram í herbúðum Villa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×