Íslenski boltinn

Gary sagður á leið til ÍBV

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gary Martin skoraði tvö mörk í þremur deildarleikjum fyrir Val.
Gary Martin skoraði tvö mörk í þremur deildarleikjum fyrir Val. vísir/daníel þór
Gary Martin mun semja við ÍBV til loka tímabils. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins.

Gary samdi um starfslok við Val í síðustu viku. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Val en lék aðeins þrjá deildarleiki með liðinu.

Martin getur samið við ÍBV núna en fær ekki leikheimild með liðinu fyrr en félagaskiptaglugginn opnar í júlí.

Framherjinn öflugi hefur leikið á Íslandi með hléum frá 2010; með ÍA, KR, Víkingi R. og Val. Hann hefur skorað 45 mörk í 96 leikjum í efstu deild hér á landi.

ÍBV er í neðsta sæti Pepsi Max-deildarinnar með tvö stig. Liðið hefur aðeins skorað þrjú mörk í fyrstu sex umferðunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×