Sport

„Mark­mið að ná Íslandsmeistaratitli“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Ian Jeffs, þjálfari Blika, ásamt Ásgerði Stefaníu Baldursdóttur, aðstoðaþjálfara liðsins.
Ian Jeffs, þjálfari Blika, ásamt Ásgerði Stefaníu Baldursdóttur, aðstoðaþjálfara liðsins. Vísir/Anton Brink

Breiðablik sigraði Stjörnuna 1-0 í dag og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Blikar munu lyfta Íslandsmeistaraskildinum næsta föstudag þegar liðið tekur á móti FH á heimavelli í lokaumferð Bestu deildar kvenna.

„Ég á erfitt með að lýsa þessu en er bara stoltur af liðinu í dag,“ sagði Ian Jeffs eftir að ljóst var að Breiðablik hafði unnið Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð.

„Þetta var ekki okkar besti leikur en samt gerðum við það sem við þurftum að gera. Ég er ánægður með að vinna leikinn og við þurfum ekki að hanga á einhverju jafntefli eða einhverju þannig. Ánægður með að vinna leikinn og klára þetta.“

Breytingar á þjálfarateymi og liðinu

Miklar breytingar urðu á leikmannahópi Breiðabliks eftir síðasta tímabil. Liðið missti fjölda lykilleikmanna, bæði í atvinnumennsku erlendis og vegna barneigna. Ian Jeffs var því stoltur af því hvernig yngri leikmenn ásamt reyndari leikmönnum stigu upp og tóku stærri hlutverk innan liðsins.

„Það er bara gríðarlegur karakter og ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu. Það voru náttúrulega margar breytingar, margir leikmenn sem fóru frá Breiðabliki eftir geggjað tímabil í fyrra. En samt finnst mér við vera búin að búa til virkilega gott lið, svona blöndu af reyndum leikmönnum sem hafa gert þetta áður og leikmönnum sem eru að taka sín fyrstu skref, kannski í fyrsta sinn sem þær eru með lykilhlutverk í liðinu.

Allt er þegar þrennt er

Markmiðið var skýrt frá uppphafi tímabils, að verja Íslandsmeistaratitilinn og tryggja Breiðabliki titilinn þriðja árið í röð.

„Mér finnst einhvern veginn að leikmenn séu búnir að stíga upp gríðarlega mikið og ég er bara stoltur af leikmönnunum í dag. Ég hrósa líka þjálfarateyminu. Við komum náttúrulega bara inn seint eftir frábært tímabil í fyrra og þetta var ákveðið markmið að ná Íslandsmeistaratitli og reyna að gera þetta þrjú ár í röð. Ég er bara virkilega stoltur og ánægður með að við gátum klárað þetta í kvöld.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×