Guardiola hissa á ummælum Solskjær: „Hef aldrei sagt mönnum að brjóta til þess að refsa“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. apríl 2019 08:30 Ole Gunnar Solskjær og Pep Guardiola mætast í kvöld vísir/getty
Í kvöld fer fram stórleikur og grannaslagur í Manchesterborg þar sem Manchester United og Manchester City mætast á Old Trafford. Leikurinn er stór fyrir bæði lið en þetta er algjör lykilleikur í titilbaráttunni fyrir Manchester City. Merki um það var að það var fast skotið á báðum blaðamannafundum knattspyrnustjóranna fyrir leikinn. Í gærmorgun hélt Ole Gunnar Solskjær sinn blaðamannafund og á honum sagði hann meðal annars að „það verða brot. Þeir munu fara í ökklana og hælana á ykkur og sparka í ykkur.“ Guardiola var spurður út í þessa athugasemd Solskjær á sínum blaðamannafundi og var hann nokkuð hissa á orðum Norðmannsins. „Sagði hann það? Með 65 eða 70 prósent af boltanum, hvernig förum við að því?“ skaut Guardiola. „Mér líka ekki þessi ummæli. Ég byggi liðið mitt ekki upp á þessu, alls ekki.“ Tölfræðin er alls ekki með Solskjær í liði í þessu máli. Samkvæmt gögnum tölfræðifyrirtækisins Opta hefur City fengið á sig 170 aukaspyrnur inni á vallarhelmingi andstæðingsins í vetur. United hefur fengið 195. Leikmenn City hafa fengið 38 gul og eitt rautt spjald í deildinni í vetur, United 64 gul og fjögur rauð. „Á tíu tímabilum sem stjóri hef ég aldrei farið inn í leik og undirbúið hann með þetta efst í huga. Aldrei,“ hélt Guardiola áfram. „Í fótbolta brýtur þú stundum af þér því leikurinn er hraður. En ég hef aldrei sagt leikmönnum mínúm að brjóta til þess að refsa andstæðingi eða loka á hann.“
Enski boltinn Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira