Liverpool aftur á toppinn eftir nauman sigur Dagur Lárusson skrifar 17. mars 2019 16:15 Milner fagnar. Vísir/getty
Liverpool komst á toppinn á ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik eftir nauman sigur á botnliði Fulham en það var James Milner sem skoraði sigurmarkið af vítapunktinum. Fyrir leikinn var Liverpool aðeins einu stigi á eftir Manchester City og vissu því fyrir leik að sigur myndi koma þeim aftur á toppinn. Eins og við var að búast að þá var Liverpool með yfirhöndina í byrjun leiks og sköpuðu sér nokkur færi. Það var síðan á 26. mínútu þar sem Sadio Mané skoraði fyrsta mark leiksins og kom þeim rauðklæddu yfir eftir frábæran undirbúning Roberto Firmino. Staðan í hálfleiknum var 0-1. Liðsmenn Fulham mættu aðeins ákveðnari til leiks í seinni hálfleikinn og áttu fleiri sóknir en engin opin marktækifæri. Það var ekki fyrr en á 74. mínútu þar sem þeirr fyrsta alvöru færi leit dagsins ljós en þá gerði Virgil Van Djik sjaldgæf mistök í vörn Liverpool en hann skallaði boltann í átt að Alisson en sendingin var heldur laus og komst Ryan Babel á milli, framhjá Alisson og skilaði boltanum í markið og jafnaði þar með metin. Leikmenn Liverpool voru þó heldur betur ekki á þeim buxunum að gefa frá sér sigurinn svona auðveldlega og sóttu því stíft næstu mínúturnar. Sá sóknarþungi skilaði sér í vítaspyrnu á 81. mínútu þegar brotið var á Sadio Mané innan teigs. Á punktinn steig James Milner og kom Liverpool yfir á nýjan leik. Liðsmenn Fulham reyndu hvað þeir gátu að jafna en allt kom fyrir ekki og sigur Liverpool því staðreynd og eru þeir komnir aftur á toppinn en Fulham er í neðsta sæti deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira