Stjóri Barnsley missti tvær tennur eftir að Barton réðst á hann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2019 12:00 Barton er ekki sá eðlilegasti. vísir/getty
Daniel Stendel, knattspyrnustjóri Barnsley, missti tvær tennur þegar Joey Barton, stjóri Fleetwood Town, réðst á hann eftir leik liðanna í ensku C-deildinni á laugardaginn. Barnsley vann leikinn, 4-2. Vitni sáu Barton ráðast á Stendel, skalla hann og kýla. Stendel var tveimur tönnum fátækari eftir árásina samkvæmt Mirror. Barton var stöðvaður af lögreglu á leið sinni af vellinum á laugardaginn. Tekin var skýrsla af Barton og lögreglan mun ræða aftur við hann í vikunni. Ekki hefur enn verið tekin skýrsla af Stendel. Þegar því er lokið gæti hann lagt fram kæru á Barton. Talið er að Barton hafi enn verið pirraður yfir einhverju sem gerðist í fyrri leik liðanna í september sem Barnsley vann, 1-3. Eftir leikinn á laugardaginn tókust Barton og Stendel í hendur. Barton átti þó eitthvað vantalað við Stendel og hljóp sem fætur toguðu til búningsherbergja á eftir honum. Barton er þekktur vandræðagemsi og kom sér oft og iðulega í vandræði á leikmannaferlinum. Honum lauk þegar Barton var dæmdur í 18 mánaða bann fyrir veðmálamisferli. Hann tók við Fleetwood degi eftir að banninu lauk. Fleetwood er í 11. sæti C-deildarinnar en Barnsley í 2. sætinu.
Enski boltinn Tengdar fréttir Réðst Joey Barton á stjóra Barnsley? Joey Barton er enn og aftur búinn að koma sér í vandræði. 13. apríl 2019 17:05 Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira
Réðst Joey Barton á stjóra Barnsley? Joey Barton er enn og aftur búinn að koma sér í vandræði. 13. apríl 2019 17:05