Úthúða íslenskum röppurum í rokkslagara hvunndagshetjunnar Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 4. október 2019 11:45 Axel segir frá því í laginu hvernig hann lærði ungur að slamma, hlusta á rokk og ról, reykja sígó og djamma. skjáskot „
Íslenskir rokkarar, þeir eru hvunndagshetjur samtímans. Íslenskir rapparar, fokking étiði skít.“ Svo hljómar viðlag nýs lags bílskúrsrokkhljómsveitarinnar Pink Street Boys, Hvunndagshetjur, sem kemur út í dag. Von er á nýrri plötu frá sveitinni í lok október, sem ber titilinn Heiglar og kemur út hjá útgáfuhluta plötubúðarinnar Reykjavík Records. Bleikgötudrengirnir hafa einmitt verið að gera upp við sig hvort þeir eigi þegar fram líða stundir að breyta nafni sveitarinnar í annað hvort Heiglar eða Fautar. Nú er ljóst að Heigla-nafnið hefur verið nýtt í annað. Í samtali við Vísi segir gítarleikari sveitarinnar, Jónbjörn Birgisson, eða Jómbi, að ákveðið sé að sveitin muni gefa út tvær plötur til viðbótar við þessa. Því næst muni þeir breyta nafninu í Fautar. „Þá verðum við allir komnir með tinnitus. Þá ætlum við að róa okkur niður og gera kántrý.“Klippa: Pink Street Boys - Hvunndagshetjur Aðspurður hvað þeir hafi á móti íslenskum röppurum hefur Jómbi fátt að segja fyrst um sinn. „Sjitt, þung spurning. Tja, við fílum Móra.“ Þess má geta að Jómbi gerði eitt sinn tónlistarmyndband fyrir rapparann grasgræna. „Neinei við erum ekkert á móti þeim, við erum bara öfundsjúkir. Þeim gengur svo vel,“ bætir hann við.En hvers vegna eru íslenskir rokkarar hvunndagshetjur samtímans? „Þeir halda áfram að rokka þó svo að þeir séu ekki að fá neitt til baka,“ svarar Jómbi um hæl. „Rokk er bara frekar asnalegt í dag. Fólk fílar það ekki, allavega ekki almúginn.“ Hann telur rokkið þó ekki dautt úr öllum æðum. „Þetta fer allt í bylgjum.“Axel Björnsson, Einar Björn Þórarinsson og Jónbjörn Birgisson í myndbandinu.skjáskotAxel Björnsson, söngvari og gítarleikari sveitarinnar, fer með aðalhlutverkið í myndbandinu við Hvunndagshetjur. „Hann er algjör villimaður í þessu, hann er náttúrulega að austan,“ segir Jómbi. „Axel klippti vídjóið. Þeir voru bara svo ógeðslega pumped í þetta, gerðu þetta á einu kvöldi.“ Textar plöturnar eru líkt og titill hennar allir á íslensku, en sveitin hefur nánast einvörðungu sungið á ensku hingað til. „Já, er þetta ekki fyrsta rokkplatan sem er öll á íslensku?,“ spyr Jómbi kaldhæðnislega þegar hann er spurður út í tilefni tungumálabreytingarinnar. „Þetta hljóta að vera einhver tímamót. Við ætlum að flytja rokkið yfir á íslensku.“Alfreð Óskarsson tambúrínusérfræðingur ásamt Jónbirni Birgissyni.aðsendNafnið Pink Street Boys vísar til Bleikgötu í Smiðjuhverfi í Kópavogi þar sem æfingahúsnæði og stúdíó sveitarinnar er til húsa. Þar hafa þeir haldið sig síðan 2006, en á þeim tíma léku þeir sýrurokk undir nafninu The Dandelion Seeds. Platan var tekin upp á Bleikgötu með aðstoð Guðlaugs Halldórs Einarssonar og Kára Guðmundssonar, en sá fyrrnefndi hefur gert garðinn frægan með sveitum á borð við Fufanu, russian.girls og Skröttum. Listamaðurinn fjölhæfi Curver Thoroddsen sá svo um masteringu. Einnig má minnast á að fjórir af sex meðlimum Pink Street Boys voru undirleikarar á tónleikum Singapore Sling í ágúst, bæði hér á landi og á Fuzz Club Eindhoven tónlistarhátíðinni í Hollandi.
Tengdar fréttir Gestir mæti með eyrnatappa Pink Street Boys, Godchilla, Kvöl og Lord Pusswhip halda háværa tónleika í kvöld. 11. desember 2014 13:00 Lítt þekktir heima fyrir en tilnefndir til Norrænu tónlistarverðlaunanna Hverjir eru Pink Street Boys? 12. febrúar 2015 11:32 Mest lesið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fleiri fréttir Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira
Gestir mæti með eyrnatappa Pink Street Boys, Godchilla, Kvöl og Lord Pusswhip halda háværa tónleika í kvöld. 11. desember 2014 13:00
Lítt þekktir heima fyrir en tilnefndir til Norrænu tónlistarverðlaunanna Hverjir eru Pink Street Boys? 12. febrúar 2015 11:32