Arnar Gunnlaugsson að detta út af topp 40 listanum hjá Leicester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2019 21:45 Arnar Gunnlaugsson fagnar marki í búningi Leicester City. Getty/Ross Kinnaird
Arnar Gunnlaugsson, núverandi þjálfari Víkingsliðsins í Pepsi Max deild karla, var um tíma í hópi dýrustu leikmanna Leicester City frá upphafi. Hann hefur dottið niður listann á síðustu árum. Eftir kaup Leicester City á Ayoze Perez í dag þá er Arnar kominn niður í 39. sæti yfir dýrustu leikmenn Leicester frá upphafi samkvæmt upplýsingum frá Transfermarkt. Arnar var keyptur á 2,52 milljónir punda frá Bolton í janúarglugganum árið 1999. Á þeim tíma var skrifað um að hann hafi verið dýrasti leikmaðurinn í sögu Leicester en í raun var hann í öðru sæti á eftir Frank Sinclair. Leicester borgaði Chelsea 2,7 milljónir punda fyrir Frank Sinclair nokkrum mánuðum fyrr eða í ágúst 1998. Arnar var aftur á móti dýrasti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi og sló þar með Hermanns Hreiðarssonar. Hermann varð aftur sá dýrasti þegar Wimbledon keypti hann frá Ipswich Town um sumarið. Arnar Gunnlaugsson hafði slegið í gegn með Bolton í ensku b-deildinni og skorað 14 mörk á fyrri hluta tímabilsins þegar Leicester keypti hann. Hlutirnir gengu aftur á móti ekki upp hjá Leicester liðinu og Arnar var óheppinn með meiðsli. Arnar náði aðeins að skora 3 mörk í 30 leikjum með Leicester í ensku úrvalsdeildinni en hann var hjá félaginu til ársins 2002. Arnar var tvisvar lánaður til Stoke, fyrst 1999–2000 tímabilið og svo aftur 2001–02. Hann fór síðan til Dundee United en samdi svo við KR sumarið 2003 og kláraði síðan ferill sinn á Íslandi. Arnar er nú í næsta sæti á eftir Frank Sinclair og í næsta sæti á undan Aleksandar Dragovic á listanum yfir dýrustu leikmenn í sögu Leicester. Það má búast við því að Arnar detti fljótlega út af topp 40 listanum enda eyða félög alltaf meira og meira í nýja leikmenn.
Enski boltinn Mest lesið „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti „Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Sport Síðustu landsleikir Arons Einars framundan Fótbolti Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Fótbolti Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Íslenski boltinn Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Íslenski boltinn Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Fótbolti Fleiri fréttir Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Sjá meira